Sakar Niemann um enn meira svindl Bjarki Sigurðsson skrifar 26. september 2022 20:24 Magnus Carlsen hætti á Sinquefield-skákmótinu eftir að hafa teflt við Hans Niemann. Getty/Dean Mouhtaropoulos Magnus Carlsen sendi fyrr í kvöld frá sér yfirlýsingu vegna viðureignar hans við Hans Niemann á Sinquefield-skákmótinu fyrr í mánuðinum. Hann segist vera pirraður og sakar Niemann um enn meira svindl.
Það vakti mikla athygli þegar norski skákmeistarinn Magnus Carlsen hætti keppni á Sinquefield-skákmótinu eftir að hafa tapað gegn ungstirninu Hans Niemann. Með sigri Niemann batt hann enda á 53 viðureigna sigurgöngu Carlsen. Stuttu eftir að Carlsen hætti á mótinu birti hann færslu á Twitter þar sem hann gaf í skyn að Niemann hafi svindlað. Hann gæti þó ekki tjáð sig um það því þá væri hann að koma sér í vandræði. Málið hefur verið á allra vörum síðustu vikur og sökuðu einhverjir Niemann um að hafa nýtt sér hjálpartæki ástarlífsins til að svindla. Í kvöld birti Carlsen svo yfirlýsingu á Twitter þar sem hann ræðir hvers vegna hann hætti á mótinu. Hann segir að svindl í skák sé stórmál og mikil ógn við skákheiminn. Hann segir að um leið og Niemann hafi verið boðið að tefla á mótinu hafi hann íhugað að hætta enda á Niemann sér svindlsögu. „Ég tel að Niemann hafi svindlað meira, og fyrir skemmri tíma, en hann hefur viðurkennt opinberlega. Framfarir hans við borðið hafa verið óvenjulegar og á meðan við tefldum leið mér eins og hann væri ekki stressaður eða að einbeita sér að leiknum á mikilvægum stöðum,“ segir Carlsen. Hann segir að það geti örfáir í heiminum spilað betur en hann sjálfur þegar þeir eru með svart og leikur þeirra hafi einungis ýtt undir efa sinn um Niemann. „Við verðum að gera eitthvað út af svindli, og að mínu mati héðan í frá, þá vil ég ekki tefla gegn fólki sem hefur ítrekað svindlað áður, því ég veit ekki hvað það gæti gert í framtíðinni,“ segir Carlsen. My statement regarding the last few weeks. pic.twitter.com/KY34DbcjLo— Magnus Carlsen (@MagnusCarlsen) September 26, 2022 Hann segist ekki geta tjáð sig meira þar til Niemann leyfir honum að segja allt sem hann vill segja. Hingað til hafi hann einungis getað tjáð sig með gjörðum og að þær gjörðir sýni að hann vilji alls ekki tefla gegn Niemann. „Ég vona að sannleikurinn komi í ljós, hver sem hann er,“ segir Carlsen að lokum.
Skák Ásakanir um svindl í skákheiminum Mest lesið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn Adam hundfúll og Arnar beint í símann Íslenski boltinn Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Íslenski boltinn Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Íslenski boltinn „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Enski boltinn Gaf leik því hún vildi ekki keppa við trans konu Sport Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Fótbolti Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Enski boltinn Fleiri fréttir Undanúrslit í Meistaradeildinni klár Arnar í tveggja leikja bann „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla Gaf leik því hún vildi ekki keppa við trans konu „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Napoli í kapphlaupið um Albert Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Kolli í titilbardaga sem gæti valdið vatnaskilum Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Dagskráin í dag: Hvort fer PSG eða Dortmund í úrslit Meistaradeildarinnar? Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Sjá meira