„Ég held, svona innst inni, að við séum búin að ná toppnum“ Atli Ísleifsson skrifar 22. nóvember 2021 08:21 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að hlutfall þeirra sem eru í sóttkví og greinast hafi verið að hækka síðustu daga. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ýmis teikn vera um að við séu búin að ná toppnum í þeirri smitbylgju sem nú stendur. Hann segir stöðuna hafa verið nokkuð góða um helgina þó að enn eigi eftir að taka tölurnar almennilega saman. „
Það fór þarna hæst í 130 á föstudaginn en síðan var það um 110 og svo rétt rúmlega 100, eitthvað svoleiðis. Við eigum eftir að gera þetta almennilega upp, en þetta voru alla vega ekki margir og við eigum eftir að sjá fjölda sýna sem voru tekin og hvernig það var,“ segir Þórólfur sem ræddi stöðu faraldursins í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Það sem er líka jákvætt í þessu er það að hlutfall þeirra sem [greinast og] eru í sóttkví er að hækka. Það hefur verið 40 til 50 prósent en nú er það komið í 60 prósent, rúmlega. Þannig að ég vona að þetta séu allt saman teikn um að við séum að þokast í rétta átt og ég held, svona innst inni, að við séum búin að ná toppnum. Það eru sumir sem telja að við eigum eftir að ná toppnum en mér sýnist að við séum búin að ná toppnum. Það getur tekið tíma að fara niður. Það þarf samt ekki nema eitt svona hópsmit í skóla eða eitthvað – bara fjörutíu, fimmtíu smit allt í einu – og þá rjúka tölurnar upp aftur.“ En hvað þýðir þetta allt saman… Ertu að segja að jólin geti verið þokkalega eðlileg hjá fólki? „Ég er eiginlega ekkert að spá um jólin, þannig. Ég held að við verðum bara sjá hvernig þróunin verður áfram og ef þetta heldur áfram að mjakast svona hægt og bítandi niður þá tekur það vissulega einhvern tíma til að komast niður í þessu fjörutíu, fimmtíu smit tilfelli, sem við viljum ná þessu niður í. Og ég held að þriðja bólusetningin sé líka að hjálpa okkur, það er ef við náum góðri útbreiðslu þar þá mun það flýta fyrir ferlinu, flýta því að kúrfan fari niður.“ Eilífðarsigling og fáum brimið á okkur úr öllum áttum Sóttvarnalæknir ræddi einnig örvunarbólusetningar sem hófust í upphafi síðustu viku. Var mætingin í kringum 70 prósent af þeim sem voru boðaðir, það er hjá þeim sem höfðu fengið skammt tvö. „Ég var að vonast til að mætingin yrði meiri en ég held að það séu ekki öll kurl komin til grafar. Ég veit að það eru margir sem áttu ekki heimagengt og það er hreyfing á þessu, en ég vona að það verði fleiri sem láti sjá sig og mæti því að ég held að eins og staðan er núna þá held ég að þetta sé vonin sem við getum horft á til að takmarka útbreiðslu hér. Ef það er getum við líka farið að slaka á meira, létt á þessum kröfum sem við höfum verið að beita. Auðvitað verður þetta líka að koma í ljós. Þetta er eilífðarsigling og við erum að fá brimið á okkur úr öllum áttum,“ segir í Þórólfur. 22 inniliggjandi Á vef Landspítalans segir að 22 séu nú inniliggjandi þar vegna Covid-19. Meðalaldur inniliggjandi er 57 ár. Þá segir að þrír séu á gjörgæslu, allir í öndunarvél.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Bítið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Fleiri fréttir Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Sjá meira