Skoða hvort myndbirtingar á OnlyFans séu klámframleiðsla Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. maí 2021 06:50 Lögreglan glímir nú við spurninguna: Hvað er klám? Og á að refsa fyrir það? Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og ákærusvið lögreglunnar munu funda um það á næstu dögum hvernig lögregla hyggst snúa sér í málum er varða Íslendinga sem selja aðgang að erótísku efni á OnlyFans.
Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag. Líkt og fram hefur komið á Vísi og í fleiri fjölmiðlum undanfarna daga og vikur virðist sá hópur Íslendinga fara stækkandi sem hefur tekjur af því að selja erótískar myndir og/eða myndskeið á síðunni. Fréttablaðið hefur eftir Ævari Pálma Pálmasyni, yfirmanns kynferðisbrotadeildar, að verið sé að taka stöðuna á málinu en eitt af því sem sé til skoðunar sé hvort um sé að ræða klám. Í 210. grein almennra hegningarlaga segir: Ef klám birtist á prenti, skal sá, sem ábyrgð ber á birtingu þess eftir prentlögum, sæta sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum. Sömu refsingu varðar það að búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á annan hátt út klámritum, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum, eða hafa þá opinberlega til sýnis, svo og að efna til opinbers fyrirlestrar, eða leiks, sem er ósiðlegur á sama hátt. [Þegar slíkt efni sýnir börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt getur refsing þó orðið fangelsi allt að 2 árum]. Það varðar ennfremur sömu refsingu, að láta af hendi við unglinga, yngri en 18 ára, klámrit, klámmyndir eða aðra slíka hluti. „Okkar forgangsröðun í kynferðisbrotadeildinni er á nauðganir, brot gegn börnum og önnur kynferðisbrot þar sem verið er að brjóta á einhverjum. Það er ekki þar með sagt að ef það er verið að fremja eitthvað sem við teljum smávægileg brot beint fyrir framan nefið á okkur þá förum við ekki í þau,“ hefur Fréttablaðið eftir Ævari. Þá segir Hulda Elsa Björgvinsdóttir, yfirmaður ákærusviðs, að efnið á OnlyFans virðist falla undir fyrrnefnt ákvæði um bann við sölu á klámi. Spurð að því hvort hægt væri að gera tekjurnar af viðkomandi starfsemi upptækar, sagði hún að skoða þyrfti hvert dæmi fyrir sig. Þess ber að geta að klámblöð eða „erótísk tímarit“ hafa löngum verið og eru enn í sölu í verslunum á Íslandi. Þannig fór Vísir á stúfana í morgunsárið og stóð til boða að kaupa að minnsta kosti sex slík á heimasíðu Pennans Eymundsson. Þar má meðal annars finna titla á borð við Cheri, Best of Beaverhunt og Hustler en um síðastnefnda segir bókstaflega á vefsíðunni: „Hustler tímaritið sem stofnað var af Larry Flint er vinsælasta klámblað heims.“ Með tölublaðinu af Best of Beaverhunt sem er til sýnis á síðunni fylgdu með tvær „hardcore XXX“ kvikmyndir í fullri lengd á dvd-disk.
Lögreglumál OnlyFans Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira