Handtekinn með sveðju og byssusting nálægt þinghúsinu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 13. september 2021 23:11 Mynd innan úr bíl Craigheads, þar sem meðal annars var að finna stóra sveðju. Lögreglan í Washington D.C. Lögreglan í þinghúsi Bandaríkjanna handtók í dag mann sem var með fjölda hnífa í bíl sínum. Hann var með ýmis pólitísk tákn máluð á bíl sinn, sem sum teljast til haturstákna.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að maðurinn, hinn 44 ára gamli Donald Craighead frá Kaliforníuríki, hafi verið stöðvaður af lögreglu skammt frá þinghúsinu í Washington D.C. Hann hafi verið stoppaður þar sem lögreglan hefði tekið eftir fjölda öfgatákna utan á bíl hans. Þar á meðal voru hakakrossar. Hann hafi þá tjáð lögreglu að hann væri í „eftirlitsferð,“ auk þess sem hann ræddi við lögreglu um hugmyndafræði hvítra þjóðernissinna. Lögregla hafi þá tekið eftir því að í bíl Craigheads hafi verið að finna fjöldan allan af hnífum. Þeirra á meðal voru byssustingur og sveðja, sem teljast til ólöglegra vopna í Washington D.C. Þá var bíllinn ekki á númerum, heldur var búið að mála bandaríska fánann þar sem skráningarnúmer bílsins átti að vera. Craighead var þegar í stað ákærður fyrir ólöglegan vopnaburð, en samkvæmt BBC liggur ekki fyrir hvort hann sé kominn með lögmann eða hvort hann ætli að gangast við ákærunni. USCP Officers Arrest California Man with Bayonet & Machete: https://t.co/0mhsoOC8vX pic.twitter.com/9SR1NXsJV6— U.S. Capitol Police (@CapitolPolice) September 13, 2021 Búa sig undir samstöðufund vegna árásarinnar á þinghúsið Lögreglan í Washington-borg undirbýr sig nú undir fjöldafund sem ber yfirskriftina „Réttlæti fyrir J6“ (e. Justice for J6). Markmið fundarins er að sýna þeim stuðning sem voru handtekin eftir áhlaup stuðningsmanna Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, á þinghúsið þann 6. janúar á þessu ári. Fundurinn er á dagskrá 18. september næstkomandi og óttast yfirvöld að til ofbeldis geti komið, líkt og í aðdraganda árásarinnar á þinghúsið. Girðingar verða settar niður umhverfis þinghúsið í varúðarskyni. Hreyfingin að baki hins fyrirhugaða fundar heitir Look Ahead America og er stýrt af Matt Braynard, sem var einn af forvígismönnum kosningabaráttu Donald Trump fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016. Hann hefur hvatt þau sem ætla að mæta á fundinn til þess að haga sér vel og tilkynna allt mögulegt ofbeldi til yfirvalda. Lögreglan segir það ekki liggja ljóst fyrir hvort Craighead hafði ætlað sér að mæta á fundinn eða hvort hann hefði áður gerst sekur um ofbeldi í Washington D.C.
Bandaríkin Donald Trump Árás á bandaríska þinghúsið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Sjá meira