Innlent

Varnar­línur settar upp

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Fjölmennt lið slökkviliðs- og björgunarsveitarmanna hefur verið að störfum í dag.
Fjölmennt lið slökkviliðs- og björgunarsveitarmanna hefur verið að störfum í dag. Vísir/Vilhelm

Slökkviliðið hefur sett upp sérstakar varnarlínur til að takmarka útbreiðslu sinubrunans við Straumsvík í Hafnarfirði. Gróðurinn mun brenna að varnarlínunum og svæðið verður vaktað. Reyk mun leggja frá svæðinu í nótt og frekari aðgerðir verða ákveðnar í fyrramálið.

Slökkviliðinu barst tilkynning um sinubrunann, sem rekja má til íkveikju nemenda í Menntaskólanum í Kópavogi, rétt eftir klukkan 13:00 í dag. Enn logar eldur í mosa á svæðinu og fólk er beðið um að hætta sér alls ekki á það. 

Á þriðja tug slökkviliðsmanna hefur komið að aðgerðunum. Björgunarsveitir og ríkislögreglustjóri aðstoðuðu við starfann. Slökkviliðinu tókst að bjarga tveimur húsum frá eldinum, þar á meðal Óttarsstöðum.

Finnur Hilmarsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að tugir hektarar lægju undir eftir brunann.

„Við náðum að bjarga tveimur húsum, eldtungurnar náðu ekki í þær. En svo er fókusinn að fara suðvestureftir, leggja lagnir og slöngur niður frá að Reykjanesbrautinni og niður að sjó, til þess að koma í veg fyrir þetta og fara hinum megin við sinuna. Það er gríðarlega þurr jarðvegur hérna og svo blæs mikið, þetta er búið að vera mjög erfitt og krefjandi.“

Eins og fréttastofa greindi frá í dag kviknaði sinubruninn líklega vegna fikts nemanda í Menntaskólanum í Kópavogi með svokallað kúlublys. Það staðfesti lögregla fyrr í kvöld, en málið er í hennar höndum. Guðríður Eldey Arnarsdóttir skólameistari sagði að allir, sem kæmu að málinu, væru miður sín.

„Þetta var nú ekki flugeldur held ég, en einhvers konar blys eða slíkt. Ég held að það átti sig mjög fáir á því um hávetur að landið geti verið orðið svona þurrt og útsett fyrir sinueldum. En svona er auðvitað óviljaverk og viðkomandi aðili er miður sín yfir þessu. Þannig að þetta var hugsunarleysi.“

„Eldurinn óútreiknanlegur“

Slökkviliðið greindi frá því á Facebook fyrr í kvöld að eldar loguðu enn í mosa á mörgum stöðum í hrauninu. Svæðið væri erfitt yfirferðar og erfitt að komast að eldinum. Fólk var enn fremur hvatt til að fara ávallt varlega með eld utandyra.

„Um kvöldmatarleytið var tekin sú ákvörðun að setja upp varnarlínur til að takmarka útbreiðslu og láta gróðurinn brenna að þeim. Slökkviliðsmenn frá SHS munu vakta svæðið í nótt en reykur mun sjást frá svæðinu í kvöld og nótt. Frekari aðgerðir verða ákveðnar í fyrramálið. Við vörum fólk við að fara á svæðið þar sem reykurinn er hættulegur, hraunið erfitt yfirferðar og eldurinn óútreiknanlegur.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×