Víkingar mæta til Malmö með sjálfstraustið í botni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. júlí 2022 08:01 Víkingar hafa verið óstöðvandi að undanförnu. Vísir/Hulda Margrét Íslands- og bikarmeistarar Víkings mæta Malmö ytra í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag. Víkingar mæta fullir sjálfstrausts í leikinn, sem er sýndur beint á Stöð 2 Sport, eftir átta sigurleiki í röð. Byrjun Víkings í Bestu deildinni var nokkuð brösug en liðið hefur heldur betur fundið taktinn að undanförnu og dansar nú sem aldrei fyrr. Eftir 0-3 tap gegn Breiðabliki þann 16. maí höfðu Íslands- og bikarmeistararnir tapað þremur af fyrstu sjö leikjum sínum í Bestu deildinni. Þá hafði liðið einnig gert markalaust jafntefli gegn Leikni Reykjavík. Síðan þá hafa Víkingar verið nær óstöðvandi, raðað inn mörkum og varla fengið á sig mark, markatala liðsins í síðustu átta leikjum er 33-3. Vissulega hafa Víkingar mætt misgóðum liðum í bikar- og Evrópukeppni en síðustu tveir deildarleikir hafa verið einkar sannfærandi. Víkingar fóru til Vestmannaeyja og unnu einkar öruggan 3-0 útisigur og sömu sögu var að segja er liðið heimsótti KR í Vesturbæ Reykjavíkur. Víkingar stóðu af sér storm í upphafi leiks er KR-ingar hentu öllu sem þeir áttu í gestina. Eftir að Nikolaj Hansen kom Víkingum yfir með marki úr vítaspyrnu var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda. Staðan í deildinni er svo þannig að ef Víkingar vinna leikinn sem þeir eiga til góða á Blika þá munar aðeins sex stigum á liðunum. Sigurhrina Víkinga Valur 1-3 Víkingur (Besta deildin) Haukar 0-7 Víkingur (Mjólkurbikar) Víkingur 2-1 KA (Besta deildin) ÍBV 0-3 Víkingur (Besta deildin) Víkingur 6-1 Levadia Tallinn (Forkeppni Meistaradeildar Evrópu) Víkingur 1-0 Inter Escaldes (Forkeppni Meistaradeildar Evrópu) Selfoss 0-6 Víkingur (Mjólkurbikar) KR 0-3 Víkingur (Besta deildin) Á meðan Malmö, sem er ríkjandi sænskur meistari, hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu hafa Víkingar verið á blússandi siglingu. Það ættu því að vera gestirnir sem mæta fullir sjálfstraust er leikur Malmö og Víkings hefst klukkan 17.00 að íslenskum tíma. Þá er vert að minnast á að Víkingar mæta þar sínum fyrrum læriföður en Miloš Milojević þjálfara Malmö í dag. Talið er að sæti hans sé orðið nokkuð heitt en sænsku meistararnir töpuðu einkar óvænt gegn Sundsvall á dögunum. Undankeppni Meistaradeildar Evrópu @malmoffen @vikingurfc Í beinni á þriðjudag kl. 16:40 pic.twitter.com/DdCJRv8ch3— Stöð 2 Sport (@St2Sport) July 4, 2022 Leikur Malmö og Víkings hefst klukkan 17.00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 16.40. Fótbolti Víkingur Reykjavík Besta deild karla Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ Handbolti Fleiri fréttir Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Sjá meira
Byrjun Víkings í Bestu deildinni var nokkuð brösug en liðið hefur heldur betur fundið taktinn að undanförnu og dansar nú sem aldrei fyrr. Eftir 0-3 tap gegn Breiðabliki þann 16. maí höfðu Íslands- og bikarmeistararnir tapað þremur af fyrstu sjö leikjum sínum í Bestu deildinni. Þá hafði liðið einnig gert markalaust jafntefli gegn Leikni Reykjavík. Síðan þá hafa Víkingar verið nær óstöðvandi, raðað inn mörkum og varla fengið á sig mark, markatala liðsins í síðustu átta leikjum er 33-3. Vissulega hafa Víkingar mætt misgóðum liðum í bikar- og Evrópukeppni en síðustu tveir deildarleikir hafa verið einkar sannfærandi. Víkingar fóru til Vestmannaeyja og unnu einkar öruggan 3-0 útisigur og sömu sögu var að segja er liðið heimsótti KR í Vesturbæ Reykjavíkur. Víkingar stóðu af sér storm í upphafi leiks er KR-ingar hentu öllu sem þeir áttu í gestina. Eftir að Nikolaj Hansen kom Víkingum yfir með marki úr vítaspyrnu var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda. Staðan í deildinni er svo þannig að ef Víkingar vinna leikinn sem þeir eiga til góða á Blika þá munar aðeins sex stigum á liðunum. Sigurhrina Víkinga Valur 1-3 Víkingur (Besta deildin) Haukar 0-7 Víkingur (Mjólkurbikar) Víkingur 2-1 KA (Besta deildin) ÍBV 0-3 Víkingur (Besta deildin) Víkingur 6-1 Levadia Tallinn (Forkeppni Meistaradeildar Evrópu) Víkingur 1-0 Inter Escaldes (Forkeppni Meistaradeildar Evrópu) Selfoss 0-6 Víkingur (Mjólkurbikar) KR 0-3 Víkingur (Besta deildin) Á meðan Malmö, sem er ríkjandi sænskur meistari, hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu hafa Víkingar verið á blússandi siglingu. Það ættu því að vera gestirnir sem mæta fullir sjálfstraust er leikur Malmö og Víkings hefst klukkan 17.00 að íslenskum tíma. Þá er vert að minnast á að Víkingar mæta þar sínum fyrrum læriföður en Miloš Milojević þjálfara Malmö í dag. Talið er að sæti hans sé orðið nokkuð heitt en sænsku meistararnir töpuðu einkar óvænt gegn Sundsvall á dögunum. Undankeppni Meistaradeildar Evrópu @malmoffen @vikingurfc Í beinni á þriðjudag kl. 16:40 pic.twitter.com/DdCJRv8ch3— Stöð 2 Sport (@St2Sport) July 4, 2022 Leikur Malmö og Víkings hefst klukkan 17.00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 16.40.
Sigurhrina Víkinga Valur 1-3 Víkingur (Besta deildin) Haukar 0-7 Víkingur (Mjólkurbikar) Víkingur 2-1 KA (Besta deildin) ÍBV 0-3 Víkingur (Besta deildin) Víkingur 6-1 Levadia Tallinn (Forkeppni Meistaradeildar Evrópu) Víkingur 1-0 Inter Escaldes (Forkeppni Meistaradeildar Evrópu) Selfoss 0-6 Víkingur (Mjólkurbikar) KR 0-3 Víkingur (Besta deildin)
Fótbolti Víkingur Reykjavík Besta deild karla Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ Handbolti Fleiri fréttir Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Sjá meira