Körfubolti

Sigrún Sjöfn: Ég tek þessi tvö stig

Helgi Hrafn Ólafsson skrifar
Baráttan var mikil í kvöld. Hér er Sigrún Sjöfn í baráttunni.
Baráttan var mikil í kvöld. Hér er Sigrún Sjöfn í baráttunni. vísir/vilhelm

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var ekki himinlifandi með frammistöðu liðsins síns, Skallagríms, í kvöld en liðið vann Hauka í Hafnarfirði naumlega, 51-54. Hún var þó sátt við að sigra fyrsta leik tímabilsins. Tilfinningarnar voru ansi blendnar.

Hún talaði um hvernig henni hefði fundist að vera spila aftur á ný eftir svona langt hlé. „Æji, ekki rosalega vel. Við vorum alls ekki nógu góðar,“ sagði hún um leik sinn og sinna liðsmanna.

„Ég veit ekki hvort að það sé áhyggjuefni eða ekki,“ sagði Sigrún Sjöfn um leikinn en var fljót að ákveða sig að svo væri ekki. „Neinei, það er ekkert áhyggjuefni. Þetta er fyrsti leikur og þetta er stirt og maður var hérna í mars í góðum fíling og svo kemurðu í þennan leik kannski ennþá með hitt tímabilið í huga,“ sagði hún um skyndilegan endi seinasta tímabilsins í skugga heimsfaraldursins.

Hauka vantaði tvo stóra pósta í liðið í kvöld, þær Lovísu Björt Henningsdóttur og Evu Margréti Kristjánsdóttur. Sigrún Sjöfn fannst það að liðið sitt hafi rétt svo unnið Hauka án slíkra leikmanna þó ekkert athugavert.

„Nei, var Haukum ekki spáð öðru sæti?“ spurði Sigrún Sjöfn.

Jú, vissulega spáði Dominos Körfuboltakvöld því en það breytti því ekki að Skallagrímur spilaði alls ekki sinn besta leik. „Við vorum lélegar og ég held að þær séu ekkert sáttar við sinn leik heldur,“ sagði hún um lokastöðuna. Stigaskorið var ekki ýkja hátt í leiknum.

„Við hittum ógeðslega illa, það var bara fáranlegt. Bæði lið, það var ekkert ofan í, layup, hægri, vinstri og ég veit ekki hvort að körfurnar hafi verið vitlaust stilltar eða hvað,“ sagði fyrirliði Borgnesinga um hörmulega skotnýtingu liðanna. Skallagrímur hitti ekki úr nema 31% skota sinna og Haukar ennþá verr.

Sigrún Sjöfn ætlaði hins vegar ekki að ofhugsa þetta og var ánægð með að vinna á útivelli. „Jú, ég tek þessi tvö stig þó að mér líði ekkert vel eftir þetta,“ sagði hún.

Skallagrímur spilar næst eftir viku þannig að liðið getur lagað það sem illa fór. „Við höfum ýmislegt til að fara yfir,“ sagði Sigrún Sjöfn og benti sérstaklega fráköst og vörn, fyrir utan skotnýtinguna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×