Fékk dróna og skotheld vesti frá Rússum

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, var leystur út með gjöfum áður …
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, var leystur út með gjöfum áður en hann hélt heim á leið. AFP

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kór­eu, yf­ir­gaf Rúss­land í dag í bryn­var­inni lest sinni eft­ir sex daga heim­sókn.

Kim átti fundi með Vla­dimír Pútín, for­seta Rúss­lands, og ýttu viðræður leiðtog­anna und­ir ótta vest­rænna ríkja um að Norður-Kórea sé reiðubúið að út­vega Rúss­um vopn sem þeir geta notað í stríðinu við Úkraínu.

Þetta var fyrsta ferð leiðtog­ans frá Norður-Kór­eu í fjög­ur ár en þeir Pútín ræddu sam­an í Vostochny-geim­ferðastöðinni, sem er í aust­ur­hluta lands­ins. Umræðuefni leiðtog­anna, sem er vel til vina, var hernaðarsam­vinna þjóðanna.

Kim Jong-un í heimsókn sinni.
Kim Jong-un í heim­sókn sinni. AFP/​Um­hverf­is­ráðuneyti Rúss­lands

Sækj­ast eft­ir sam­starfi

Rúss­ar hafa sóst eft­ir vopn­um frá Norður-Kór­eu­mönn­um og á móti eru Rúss­ar sagðir reiðbún­ir að aðstoða Norður-Kór­eu við þróun gervi­hnatta.

Rætt hef­ur verið um að aðal til­gang­ur heim­sókn­ar Kim til Rúss­lands hafi verið vopna­sölu­samn­ing­ar en leiðtog­arn­ir létu hafa eft­ir sér að eng­ir slík­ir samn­ing­ar hafi verið gerðir.

Ser­gei Lavr­ov, ut­an­rík­is­ráðherra Rússa, sagði í viðtali við rúss­neska rík­is­sjón­varpið í dag að Rúss­ar muni sækj­ast eft­ir sam­starfi við Norður-Kór­eu þrátt fyr­ir refsiaðgerðir Sam­einuðu þjóðanna.

„Við boðuðum ekki refsiaðgerðir gegn Norður-Kór­eu, en það gerði ör­ygg­is­ráðið,“ sagði Lavr­ov.

Sergei Sjoígú og Kim Jong-un takast í hendur.
Ser­gei Sjoígú og Kim Jong-un tak­ast í hend­ur. AFP/​KCNA

Nýtt tíma­bil vináttu

Kim heim­sótti einnig Vla­dív­ostok og átti þar fund með Ser­gei Sjoígú, varn­ar­málaráðherra Rúss­lands, og áður en hann hélt af stað frá borg­inni voru hon­um af­hent­ir fimm sprengju­drón­ar, njósna­drón­ar og skot­held vesti að gjöf frá land­stjóra Primor­ye-héraðsins, sem ligg­ur að Kína og Norður-Kór­eu.

Norðurkór­eska frétta­stof­an KCNA hef­ur lýst heim­sókn Kim til Rúss­lands sem afar hlý­legri og að nýtt tíma­bil vináttu, sam­stöðu og sam­vinnu sé að hefjast á milli Norður-Kór­eu og Rúss­lands.

Hinn dáði leiðtogi Norður-Kóreu ferðaðist með lest frá Norður-Kóreu til …
Hinn dáði leiðtogi Norður-Kór­eu ferðaðist með lest frá Norður-Kór­eu til Rúss­lands. AFP/​KCNA
mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert