Vonar að MAX-þoturnar fari í loftið í febrúar og trúir því að fólk muni treysta þeim Birgir Olgeirsson skrifar 16. október 2020 18:40
Flugrekstrarstjóri Icelandair vonar að fyrsta ferðin með MAX-þotu verði farin í febrúar. Forstjóri Flugöryggisstofnunar Evrópu býst við grænu ljósi í lok þessa árs. Patrick Ky, forstjóri Flugöryggisstofnunar Evrópu, segist telja að þær breytingar sem gerðar hafa verið á Boeing MAX-þotunum geri það að verkum að þær teljist nú öruggar. „Það er virkilega ánægjulegt að Patrick Ky skuli láta þessi orð falla. Þetta er búið að vera langt ferli, búið að taka eitt og hálft ár,“ segir Haukur Reynisson flugrekstrarstjóri Icelandair. Icelandair pantaði upprunalega 16 MAX-þotur. Nú stendur til að fá 12 MAX-þotur í flotann. Boeing Max 8 þota Icelandair.Vísir/Kristján Már „Við erum með sex 737 MAX í rekstri næsta sumar, og fáum reyndar þrjár líka á næsta sumri en þær verða sennilega ekki til fyrr en á miðju sumri eða um haustið,“ segir Haukur. Það mun taka Icelandair um tvo mánuði að koma MAX-þotum í loftið eftir að leyfi fæst. „Það veltur að sjálfsögðu líka á því hvernig ástandið verður varðandi Covid. Hvort við verðum farin að fljúga að fullu áætlunina okkar eða hvort við þurfum að seinka móttöku í tengslum við það.“ Hvenær heldur þú að fyrsta flugið verði? „Ég ætla að leyfa mér að vona að það verði í febrúar/mars.“ Hann hefur trú á að fólk muni vilja ferðast með þessum umdeildu þotum. „Og það sem er jákvætt við þetta, ef maður getur sagt að eitthvað sé jákvætt við þetta, að flugöryggiskerfi flugiðnaðarins greip inn í þann hátt að vélarnar voru stoppaðar af fyrir einu og hálfu ári síðan. Það var farið í mjög ítarlega skoðun á vélunum og það er búið að gera þær breytingar sem þarf að gera til að tryggja að þær séu öruggar í rekstri. Ég hef trú á að farþegar komi til með að sjá, eins og við sem eru í flugrekstrinum, að það sé búið að gera það sem hægt er að gera til að tryggja öryggi.“
Icelandair Boeing Fréttir af flugi Tengdar fréttir Forstjóri Flugöryggisstofnunar Evrópu segir MAX vélarnar öruggar Forstjóri Flugöryggisstofnunar Evrópu, EASA, Patrick Ky, segist telja að þær breytingar sem gerðar hafi verið á Boeing MAX þotunum geri það að verkum að þær teljist nú öruggar. 16. október 2020 08:49 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni Atvinnulíf Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Neytendur Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Viðskipti innlent Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Viðskipti innlent Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Viðskipti innlent FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Neytendur Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík Atvinnulíf Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stöð 2+ lækkar verð Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Markaðstorg með raforku spretta upp KEA nú stærsti hluthafinn í Norlandair Sjá meira
Forstjóri Flugöryggisstofnunar Evrópu segir MAX vélarnar öruggar Forstjóri Flugöryggisstofnunar Evrópu, EASA, Patrick Ky, segist telja að þær breytingar sem gerðar hafi verið á Boeing MAX þotunum geri það að verkum að þær teljist nú öruggar. 16. október 2020 08:49