Segir allt vera galopið í baráttunni um Meistaradeildarsæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. mars 2021 13:30 Youri Tielemans og félagar í Leicester er í góðum málum í þriðja sætinu eins og er en hópurinn er þunnur og má ekki mikið við meiðslum. Getty/Michael Regan Englandsmeistarar Liverpool löguðu aðeins stöðu sína í ensku úrvalsdeildinni með sigri í gærkvöldi en þeir eru enn talsvert frá einu af „góðu sætunum“ í deildinni.
Danny Murphy, sérfræðingur í Match of the day þættinum í breska ríkisútvarpinu, sér fyrir sér mikla spennu í baráttunni um farseðlana í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Murphy yfir stöðuna á toppi deildarinnar eftir leiki helgarinnar þar sem Manchester City jók forystu sína þar sem bæði Manchester United, Leicster City og West Ham töpuðu öll stigum. „Það er eins og titilbaráttan hafi klárast fyrir nokkrum vikum enda vinnur City alla leiki sína á meðan hin liðin eru að tapa stigum. City þurfti ekki einu sinni að spila vel til að vinna West Ham á laugardaginn. Nú eru þeir með tólf stiga forystu þegar bara tólf leikir eru eftir. Baráttan er því aðeins um hvaða þrjú lið fylgja City í Meistaradeildina,“ skrifaði Danny Murphy. "It would be a brilliant achievement if they were to stay inside that top four."@alanshearer and Danny Murphy discuss Leicester's injury problems... Watch #MOTD2 on @BBCOne and @BBCiPlayer: https://t.co/nWwetNiMnq pic.twitter.com/sudLYF5fyD— Match of the Day (@BBCMOTD) February 28, 2021 „Endspretturinn í deildinni verður mjög áhugaverður og allt er galopið þar,“ skrifaði Murphy. „Manchester United fékk á sig gagnrýni fyrir að sýna ekki nógu mikið hugrekki í leiknum á móti Chelsea en þökk sé stiginu á Brúnni þá er liðið hans Ole Gunnars Solskjær með sex stiga forskot á liðið í fimmta sæti. Þeir eru langlíklegastir til að taka annað sætið,“ skrifaði Murphy. „Ég held líka að Chelsea nái einu af fjórum efstu sætunum af því að þeir hafa mikla breidd og það er mjög erfitt að vinna þá síðan að Thomas Tuchel tók við. Þeir tapa bara ekki leikjum,“ skrifaði Murphy. „Fyrir utan þetta er erfitt að sjá fyrir sér hvernig þetta þróast. Leicester, Liverpool, West Ham og Everton telja sig öll eiga möguleika og þá eru Arsenal og Tottenham að nálgast þau eftir góð úrslit um helgina,“ skrifaði Murphy. „Á síðasta tímabili réðst það ekki fyrr en á lokadeginum hvaða lið enduðu í þriðja og fjórða sæti þar sem Manchester United og Chelsea höfðu betur í baráttunni við Leicester. Það lítur út fyrir að þetta verði alveg eins jafnt í ár,“ skrifaði Murphy. Það má lesa allan pistil Danny Murphy með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Íslenski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Enski boltinn Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Sjá meira