Fótbolti

Blikar mæta stórliði sem var ekki til í fyrra

Sindri Sverrisson skrifar
Lorena Navarro og stöllur í Real Madrid taka á móti Breiðabliki í kvöld.
Lorena Navarro og stöllur í Real Madrid taka á móti Breiðabliki í kvöld. Getty/Irinia R. Hipolito

Blikakonur mæta liði eins þekktasta knattspyrnufélags heims í kvöld í öðrum leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Kvennalið Real Madrid varð hins vegar ekki til fyrr en í fyrrasumar.

Þó að karlalið Real Madrid sé það sigursælasta í sögu Meistaradeild Evrópu þá er kvennaliðið þar á nýjum slóðum.

Ana Rossell, fyrrverandi leikmaður Atlético Madrid, hóf baráttu fyrir því undir lok síðustu aldar að stofnað yrði kvennalið undir hatti Real Madrid. Segja má að skref í þá átt hafi loks verið tekið þegar félagið TACÓN var stofnað árið 2014.

TACÓN lék í næstefstu deild til ársins 2019 en fór þá upp í efstu deild og endaði í 10. sæti á sinni fyrstu leiktíð. Ljóst var frá byrjun að ráðamenn Real Madrid væru opnir fyrir þeim möguleika að taka yfir félagið og frá því var svo gengið í fyrrasumar.

Breiðablik stóð vel í PSG í fyrsta leik sínum í riðlakeppninni en tapaði að lokum 2-0.vísir/vilhelm

Ári áður, eða tímabilið 2019-2020, hóf TACÓN að spila á svæði Real Madrid og leikurinn við Breiðablik í kvöld fer fram á Alfredo di Stéfano vellinum, sem karlalið Real lék á á síðustu leiktíð vegna framkvæmda á Santiago Bernabéu.

Gengið illa í haust og leikmenn meiddir

Real Madrid hefur gengið afar illa það sem af er leiktíð á Spáni og er aðeins með fjögur stig eftir sex umferðir, í 13. sæti, eftir að hafa endað í 2. sæti á síðustu leiktíð.

Það er vatn á myllu Blika að mikið er um meiðsli í leikmannahópi Real sem til að mynda saknar sænska markaskorarans Kosovare Asllani auk þess sem aðeins einn eiginlegur miðjumaður aðalhóps félagsins er til taks. Engu að síður er ljóst að Blika bíður afar erfitt verkefni.

Leikur Real Madrid og Breiðabliks hefst klukkan 19 í kvöld og hægt verður að horfa á beina útsendingu á Vísi.

Í fyrstu umferð riðlakeppninnar tapaði Breiðablik 2-0 gegn PSG en Real vann úkraínska liðið Zhytlobud 1-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×