Enski knattspyrnumarkvörðurinn Ellie Roebuck fer frá Manchester City til Barcelona að yfirstandandi tímabili loknu.
Samningur Roebuck hjá Manchester-félaginu rennur út í sumar og mun hún þá ganga til liðs við Evrópumeistaranna.
Mun hún þar keppa við aðalmarkvörðinn Cötu Coll um sæti í byrjunarliðinu.