Stjarnan og KR munu etja kappi í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu. Dregið var í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal í hádeginu í dag.
Alls fara þrír Bestu deildar slagir fram í 16-liða úrslitunum, sem verða leikin 16. og 17. maí næstkomandi.
Fylkir fær HK í heimsókn í Árbæinn og KA mætir Vestra á Akureyri.
Bikarmeistarar Víkings úr Reykjavík þurfa ekki að fara langt þar sem þeir mæta Grindavík í Safamýri, sem er skráður heimaleikur Grindavíkur.
Drátturinn í heild sinni (deildir liða utan Bestu deildarinnar í sviga):
Fram – ÍH (3)
Keflavík (1) – ÍA
KA – Vestri
Fylkir – HK
Stjarnan – KR
Afturelding (1) – Valur
Fjölnir (1) – Þór Ak. (1)
Grindavík (1) – Víkingur R.
Mbl.is fylgdist með drættinum í beinni textalýsingu.
Dregið í 16-liða úrslit bikarkeppni karla | Opna lýsingu Loka | ||
---|---|---|---|
kl. 12:15 Leik lokið Þá eru 16-liða úrslitin ljós. Leikirnir fara fram 16. og 17. maí. Takk fyrir samfylgdina. | |||
Augnablik — sæki gögn... |