Bölsótuðust út í Djokovic á upptöku

Þulirnir ræddu sín á milli fyrir útsendinguna.
Þulirnir ræddu sín á milli fyrir útsendinguna.

Samtal tveggja fréttaþula í Ástralíu, þar sem vegabréfaáritunarvesen tennisspilarans Novak Djokovic var til umræðu, hefur farið eins og eldur í sinu um netheima eftir að upptaka af því lak út frá 7-sjónvarpsfréttastöðinni þar í landi.

Fréttamennirnir Mike Amor og Rebecca Maddern tala þar tæpitungulaust um tennisstjörnuna á sama tíma og þau búa sig undir að segja kvöldfréttir þriðjudagsins.

Stöðin hefur hafið rannsókn á lekanum, sem hún segir ólöglegan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert