Finnbogi Jónsson er látinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. september 2021 16:13 Finnbogi Jónsson var mikill áhugamaður um nýsköpun og kynnti sér nýjustu tækni um borð í Oddeyrinni EA í júlí síðastliðnum. Finnbogi Jónsson verkfræðingur og fyrrverandi stjórnarformaður Samherja lést þann níunda september síðastliðinn í Vancouver í Kanada. Finnbogi lét mjög að sér kveða í íslensku atvinnulífi og sat í stjórn fjölmargra félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana. Greint er frá andláti Finnboga á vefsíðu Samherja.
Finnbogi var framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað frá 1986 til 1999, forstjóri Íslenskra sjávarafurða hf. 1999, aðstoðarframkvæmdastjóri SÍF, starfandi stjórnarformaður Samherja hf. 2000 til 2005 og framkvæmdastjóri SR-mjöls h/f frá 2003 til 2006. Finnbogi var framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins frá 2006 til 2010 og sat auk þess í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og stofnana, svo sem háskólaráði Háskólans á Akureyri. „Áhrifa starfa Finnboga gætir víða í íslensku atvinnulífi og við sem förum fyrir Samherja stöndum í mikilli þakkarskuld við hann. Ákvarðanir sem Finnbogi tók eða lagði til, voru vel ígrundaðar og byggðar á þekkingu og glöggu innsæi. Finnbogi hafði einstakt lag á að leiða saman fólk til samstarfs og viðskipta sem skilað hefur atvinnulífinu ávinningi og þar með þjóðarbúinu. Hans er sárt saknað með djúpri virðingu,“ segir Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja. Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir Finnboga hafa verið dreng góðan, mikinn Akureyring sem hafi ávallt borið hag bæjarins fyrir brjósti. „Jákvæðni og framsýni var áberandi í fari Finnboga enda hafði hann einstakt lag á að fá fólk til liðs við metnaðarfull og framsækin verkefni. Þátttaka Finnboga Jónssonar í íslensku atvinnulífi hefur verið áhrifarík, sérstaklega í sjávarútvegi og nýsköpun. Við hjá Samherja kveðjum góðan vin og samstarfsmann með einlægu þakklæti,“ segir Þorsteinn.
Andlát Sjávarútvegur Íslendingar erlendis Akureyri Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir Eltihrellirinn langoftast fyrrverandi maki Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Sjá meira