Helgi Pé: Fáir sem geti nýtt sér tvöföldun frítekjumarks atvinnutekna Atli Ísleifsson skrifar 30. nóvember 2021 11:07 Helgi Pétursson er formaður Landssambands eldri borgara, segir að aldrei hafi jafn mörgum verið lofað jafn miklu jafn oft eins og eldra fólki á Íslandi. Stöð 2 Frítekjumark atvinnutekna ellilífeyrisþega verður hækkað í tvö hundruð þúsund krónur á mánuði um næstu áramót. Mun það þar með tvöfaldast.
Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara, segir að sér þyki ekki mikið til þeirra aðgerða koma sem ríkisstjórnin boðar í fjárlagafrumvarpinu og snúi að eldri borgurum. „Aldrei hefur jafn mörgum verið lofað jafn miklu jafn oft eins og eldra fólki á Íslandi. Efndirnar hafa hins vegar verið litlar. Mér sýnist að þetta sé að fara í svipaðan farveg og áður og vanti mikið upp á.“ Tvöföldun frítekjumarks atvinnutekna ellilífeyristekna var eitt af því sem ný ríkisstjórn boðaði að yrði gert þegar nýr stjórnarsáttmáli var kynntur um helgina. Kostnaður vegna tvöföldunarinnar er áætlaður um 540 milljónir króna. „Það er mikið um að „horft skuli til“ hins og þessa. Mér sýnist að menn ætli í ár að láta nægja að hækka frítekjumark vegna atvinnutekna, en að ekkert annað sé í hendi. Síðan er talað um endurskoðun á almannatryggingakerfinu og að „fari fram“ hitt og þetta. Það er ekkert nýtt í þessu. En það á eftir að koma í ljós hvaða efndir fylgja þessum orðum,“ segir Helgi. Úr kynningu fjármálaráðherra í morgun. Ætti frekar að líta til lífeyristekna Varðandi þessa tvöföldun frítekjumarks segir Helgi að það séu tiltölulega fáir sem geti nýtt sér hana. Hann segir stóran hluta lífeyrisþega lifa á tekjum undir lágmarkslaunum. „Það er ekki enn farið að hífa frítekjumark lífeyristekna upp að lágmarkslaunum. Það er svo stór hluti sem er ekki að nýta sér þennan atvinnuteknaafslátt. Þetta lítur vel út en ef menn hefðu hækkað á sama stað frítekjumörk lífeyristekna þá værum við að tala um aðra hluti. Það eru miklu fleiri sem gætu nýtt sér slíkt. Þetta lítur út eins og það sé mikið hagsmunamál en það eru fáir sem geta nýtt sér þetta. Þetta eitt og sér gerir ekki mikið,“ segir Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara.
Fjárlagafrumvarp 2022 Eldri borgarar Tengdar fréttir Gera ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs á næsta ári. 30. nóvember 2021 09:18 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Fleiri fréttir Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn Sjá meira
Gera ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir 169 milljarða króna hallarekstri ríkissjóðs á næsta ári. 30. nóvember 2021 09:18