„Fyrstu tveir þættirnir eru komnir í loftið og geta því loðnuáhugamenn sem bíða í örvæntingu eftir að fara að sjá og heyra sögur af vertíðinni svalað þorsta sínum með því að hlusta á hlaðvarp Loðnufrétta,“ segir í tilkynningu frá Loðnufréttum.

Umsjónarmaður er Ingvi Þór Georgsson ritstjóri Loðnufrétta.is, sem er fréttavefur þar sem grannt er fylgst með framgangi vertíðarinnar sem nú fer að komast almennilega í gang.

Upplýsingar á síðunni eru byggðar á opinberum gögnum frá Fiskistofu og eru uppfærðar einu sinni á dag. Gögn um verðmæti byggja á gögnum Hagstofu og upplýsingum úr kynningum sjávarútvegsfyrirtækja.

„Í ljósi þess að vertíðin í ár verður mun skemmri en í fyrra sökum úthlutunar var ákveðið að bregða á það ráð að „hita aðeins upp“ í staðinn og búa til 5-6 þætti fyrir þau allra hörðustu en hugmyndin er að sjálfsögðu líka að reyna að fá fleiri til að fylgjast með,“ segir Ingvi.

Í fyrsta þætti er tekin létt yfirferð á vertíðinni og síðan viðtal við Geir Zoega skipstjóra á Polar Amaroq en hann hefur getið af sér gott orð sem skipstjóri hér heima og í Grænlandi. Í þætti tvö var farið yfir verðmætasköpun síðustu vertíðar, aflatölur og spáð í spilin fyrir komandi vertíð ásamt Arnari Þór Ólafssyni.

Næstu þættir sem líta dagsins ljós eru samtöl við fólk sem stýrir hátæknivinnslum, markaðsmálum og tengdum iðnuðum til að kynnast því frá öllum hliðum hvernig loðnan hefur áhrif á efnahaginn, þjóðarsálina og sjávarútveg. Ísfell er helsti bakhjarl Loðnufrétta í ár og mun starfsmaður þeirra einnig koma og fræða hlustendur um veiðarfærin og af hverju helstu spekingar velta vöngum yfir hvort betra væri að vera á loðnuflotvörpu eða nót við veiðarnar.

Hægt er hlusta á hlaðvarpið á öllum helstu hlaðvarpsveitum, þar á meðal á Spotify.