Tekjur Hafnarfjarðarhafnar jukust um 15%

Hafnargjöld skilaði Hafnarfjarðarhöfn 515 milljónum króna á síðasta ári.
Hafnargjöld skilaði Hafnarfjarðarhöfn 515 milljónum króna á síðasta ári. Ljósmynd/Hafnarfjarðarhöfn

Hafnarfjarðarhöfn skilaði 261 milljón króna í rekstrarhagnað árið 2022. Þá voru heildartekjur hafnarinnar 874 milljónir sem er 120 milljónir meira en árið 2021 og nemur hækkunin milli ára því 15%.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hafnarfjarðarhafnar.

„Aukning hefur verið í löndun á bæði ferskum og frystum fiski, auk þess sem vöruflutningar hafa farið vaxandi og hátt álverð á heimsmarkaði tryggt hækkun vörugjalda frá álversmiðjunni í Straumsvík.  Þá hefur einnig verið mikil umferð skipa til viðgerða og viðhalds á hafnarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.

Tekjur af hafnargjöldum voru 583 milljónir, þjónustugjöld um 160 milljónir og lóðaleigutekjur 93 milljónir. Rekstrargjöld námu 515 milljónum króna, þar af voru laun og launatengd gjöld um 260 milljónir.

Fjárfest fyrir 207 milljónir

Veltufé frá rekstri nam nær 390 milljónum og handbært fé í árslok var um 607 milljónir.  Langtímaskuldir voru um 270 milljónir þar af voru lífeyrisskuldbindingar 212 milljónir. Eigið fé hafnarsjóðs nam um 3,9 milljörðum við lok síðasta árs og hafði aukist milli ára um tæpar 300 milljónir.

„Fjárfestingar á árinu 2022 voru uppá nær 207 milljónir, að stærstum hluta vegna nýs háspennu rafkerfis vegna landtenginga skemmtiferðaskipa og frystitogara við Hvaleyrarbakka og Suðurbakka,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »