Fjölda eldflauga skotið að Ísrael Samúel Karl Ólason skrifar 10. maí 2021 16:07 Eldflaugum skotið frá Gasa í dag. AP/Khalil Hamra Tugum eldflauga hefur verið skotið frá Gasa að Ísrael og Jerúsalem í dag. Forsvarsmenn Hamas höfðu gefið yfirvöldum Ísraels frest til klukkan þrjú í dag, að íslenskum tíma, til að yfirgefa al-Aqsa moskuna á musterishæð.
Loftvarnarsírenur hafa hljómað víða um Suður-Ísrael. Enn sem komið er hafa engar fregnir borist af mannfalli. Her Ísraels segir þó að einn maður hafi verið fluttur á sjúkrahús eftir að eldflaug var skotið að bíl sem hann var í nærri landamærum Gasa. Þá hafa fregnir borist af því að Ísraelar hafi gert loftárásir á Gasa í kjölfar eldflaugaárásanna. Heilbrigðisráðuneyti Palestínu segir níu hafa fallið í þeim. Þar á meðal þrjú börn. Her Ísraels segir þau ekki hafa fallið í loftárás heldur vegna eldflaugar sem skotið var frá Gasa og fór af leið. Hamas-liðar skutu upprunalega sjö eldflaugum að Jerúsalem. Ein þeirra var skotin niður og hinar munu ekki hafa valdið skaða. AP fréttaveitan hefur eftir talsmanni Hamas að árásirnar væru svar við aðgerðum Ísraels í Jerúsalem og hótaði hann frekari aðgerðum ef Ísraelar geri aftur atlögu að al-Aqsa moskunni eða flytji fjölskyldur Palestínumanna frá austurhluta Jerúsalem, eins og til stendur. Video of the Iron Dome interceptions over Sderot a short while ago pic.twitter.com/1jxcvNghtS— Emanuel (Mannie) Fabian (@manniefabian) May 10, 2021 Mikil spenna hefur verið í borginni undanfarna daga, sem rekja má til þess að Ísraelar ætla sér að reka Palestínumenn frá hverfi í Austur-Jerúsalem, sem landtökumenn hafa sölsað undir sig. Palestínumenn vilja að borgarhlutinn verði höfuðborg sjálfstæðs ríkis þeirra í framtíðinni en Ísraelar hafa hersetið svæðið frá 1967. Sjá einnig: Mikil átök milli mótmælenda og lögreglu á Musterishæð Times of Israel segir að íbúum í bæ í suðurhluta landsins hafi verið sagt að fara heim og læsa hurðum sínum, vegna fregna um að hryðjuverkamenn hafi laumað sér yfir landamæri Ísraels og Gasa. Sú viðvörun var þó dregin til baka. AP segir spennuna gífurlega mikla í dag og að mögulega skelli á nýtt stríð milli Ísraels og Hamas. Her Ísraels hefur sent aukið herlið að landamærum Ísraels og Gasa. Talsmaður hersins sagði á fimmta tímanum í dag að herinn myndi bregðast við og innrás væri jafnvel á borðinu.
Ísrael Palestína Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Innlent Fleiri fréttir Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Sjá meira