Sóttu veika rjúpnaskyttu

Þyrla Landhelgisgæslunnar, mynd úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Björgunarsveitir voru kallaðar út eftir hádegi vegna veikrar rjúpnaskyttu á Suðurlandi. Jafnframt var óskað eftir aðstoð áhafnar þyrlu Landhelgisgæslunnar. 

Þyrlan fór í loftið í Reykjavík rúmlega tvö og var kominn á staðinn þar sem maðurinn var klukkan 15:10 en hann var staddur vestur af Kirkjubæjarklaustri, fjarri þjóðvegum. Þyrlan lenti með sjúklinginn við Landspítalann í Fossvogi skömmu fyrir klukkan 16. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert