Króli og Rakel Björk gefa út dansmyndbandið Smellum saman Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 18. júní 2021 10:11 Pipar\TBWA framleiddi Smellum saman myndbandið í samstarfi við Republik Í dag kom út nýtt lag og myndband frá Króla og Rakel Björk. Um er að ræða kraftmikinn sumarsmell um ástina, lífið og mikilvægi þess að smella saman.
Að baki laginu Smellum saman er jafnframt boðskapurinn um að við smellum öryggisbeltunum á okkur áður en lagt er af stað í hverja ökuferð. Í stað þess að vekja athygli á hörmulegum afleiðingum vísar lagið, sem og myndbandið, til jákvæðni, gleði, vináttu og virðingar fyrir okkur sjálfum og öðrum. Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Króli og Rakel Björk - Smellum saman Á hverju ári slasast alvarlega og látast einstaklingar sem allar líkur eru taldar á að hefðu sloppið nánast ómeiddir ef þeir hefðu notað öryggisbelti. Öryggisbeltin eiga og þurfa að vera hluti af daglegu lífi okkar — okkar allra. Rétt eins og ástin, vináttan, gleðin og samband okkar við fólk sem okkur þykir vænt um. Það getum við tryggt með því að smella saman. Þrátt fyrir að öryggisbeltin hafi fyrir löngu sannað mikilvægi sitt og gildi eru Íslendingar í sautjánda sæti Evrópuþjóða hvað varðar notkun öryggisbelta, neðst Norðurlandanna, og einn af hverjum tíu sleppir beltinu alfarið. Með einum smelli Myndband lagsins, sem líkja má við stutta dans- og söngvamynd, vekur vonandi jákvæðar hugrenningar sem fá okkur til að spenna beltin og komast í fyrsta sæti Evrópuþjóða í notkun öryggisbelta — þannig fáum við tryggt enn betur öryggi okkar og lífsgæði. Með einum smelli getum við komist í sigursætið. Samgöngustofa stendur að átakinu Smellum saman en um framleiðslutaumana heldur auglýsingastofan Pipar\TBWA. Snæbjörn Ragnarsson samdi lag og texta en tónlistin var framleidd af Hafsteini Þráinsyni, Kristni Óla Haraldssyni og Starra Snæ Valdimarssyni. Reynir Lyngdal leikstýrði myndbandinu sem Pipar\TBWA framleiddi í samstarfi við Republik. Danshöfundur er Chantelle Carey en dansinn vísar í umferðina, akstur og sætisbeltin sjálf. Og nú er komið að okkur öllum að dansa! „Smellum saman í allt sumar og um ókomna tíð,“ segir í tilkynningu um lagið, sem má heyra í spilaranum hér ofar í fréttinni. Textann má sjá hér fyrir neðan. Öll við þráum sannarlega tryggð og traust, við trúum því að öryggið sé endalaust, en hamingjan er brothætt þegar hættan steðjar að. Svo er nú það. Lukkan stýrir okkur yfir lífsins veg. Léttúðin er sannarlega hættuleg. Við förum okkur hægt meðan við finnum rétta slóð, á þessum skrjóð. Ég býð þér upp í bílinn með mér og við brunum strax af stað. Við eigum okkur lítinn leynistað. Og núna finn ég að við smellum saman, já við smellum saman og farsældin til ferðalaga fylgir okkur alla daga. Smellum saman, já við smellum saman og lífið aldrei beitir brellum bara ef við alltaf smellum saman. Nýtum þennan yndislega dýrðardag og drífum okkur tvö í þetta ferðalag. Á þjóðveginum mætir okkur þoka, regn og snjór og hann er mjór. Förum gegnum skafrenninginn hönd í hönd, hinum megin sólarljós og ókunn lönd. Við bundin erum ástinni með beltin þéttingsföst og það er möst. Ég býð þér upp í bílinn með mér og við brunum strax af stað. Við eigum okkur lítinn leynistað. Og núna finn ég að við smellum saman, já við smellum saman og farsældin til ferðalaga fylgir okkur alla daga. Smellum saman, já við smellum saman og lífið aldrei beitir brellum bara ef við alltaf smellum saman. Þú og ég, við höldum heim á leið. Við smellum saman bæði tvö. Hjörtun okkar smella saman bæði tvö. Þú og ég, við höldum heim á leið. Við smellum saman bæði tvö. Hjörtun okkar smella saman bæði tvö. Smellum saman, já við smellum saman og farsældin til ferðalaga fylgir okkur alla daga. Smellum saman, já við smellum saman og lífið aldrei beitir brellum bara ef við alltaf smellum saman.
Tónlist Umferðaröryggi Mest lesið „Eins og verstu unglingar í sleepover“ Makamál „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Lífið Grease-stjarnan Susan Buckner látin Lífið Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Lífið Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Lífið Anníe Mist fór í keisaraskurð Lífið 23 ára og með sína eigin förðunarlínu Tíska og hönnun Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Lífið Hera komst ekki áfram Lífið Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum Lífið Fleiri fréttir Hin raunverulega Martha opnar sig hjá Piers Morgan Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf Myndaveisla: Gleði og gæsahúð á forsýningu Sveitarómantíkur Raggi Bjarna þekkti ekki Friðrik Dór með nafni Friðrik Ómar kynnir stig Íslands í Eurovision Ian Gelder úr Game of Thrones látinn „Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“ Svakalega erfitt en stórkostlegt Anníe Mist fór í keisaraskurð Ungfrú Bandaríkin afsalar sér titlinum Sötrað á Kalda í tíu ár Grease-stjarnan Susan Buckner látin Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Hera komst ekki áfram „Af hverju er oft vont að putta sig?“ Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Eurovision-hópurinn afklæðist milli atriða Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Glösin á loft fyrir nýjum burstahreinsi „Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Jólasveinarnir langt á undan áætlun Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Sjá meira