Real í undanúrslit eftir sigur á Atletico í framlengdum leik Smári Jökull Jónsson skrifar 26. janúar 2023 23:10 Rodrygo fagnar hér jöfnunarmarki sínu í leiknum í kvöld. Vísir/Getty Real Madrid er komið áfram í undanúrslit spænska konungsbikarsins í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á nágrönnum sínum í Atletico í framlengdum leik í kvöld.
Það er alltaf spenningur fyrir alvöru grannaslagi og hvað þá þegar nágrannaliðin frá Madríd mætast. Fyrir leikinn í dag bárust fréttir af miður skemmtilegu athæfi nokkurra stuðningsmanna Atletico Madrid sem hengt höfðu dúkku í búning Vinicius Jr. fram af brú. Það var því búist við hörkuleik í kvöld og fjörið var heldur betur mikið. Gestirnir í Atletico byrjuðu betur og spænski landsliðsmaðurinn Alvaro Morata kom þeim í 1-0 á 9.mínútu þegar hann skoraði eftir sendingu Nahuel Molina. Staðan í hálfleik var 1-0 en Real tókst að jafna metin þegar rúmar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Brasilíumaðurinn Rodrygo skoraði þá eftir sendingu frá hinum síunga Luka Modric. Staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og því varð að framlengja. Þar voru heimamenn sterkari. Karim Benzema kom Real í 2-1 á 104.mínútu eftir sendingu Vinicius Jr. og brasilíumaðurinn rak svo smiðshöggið þegar hann skoraði þriðja mark Real í uppbótartíma framlengingarinnar. Real er því komið í undanúrslitin og verða í pottinum ásamt Barcelona, Osasona og Athletic Bilbao sem lagði Valencia 3-1 á útivelli í kvöld. Dregið verður í undanúrslit á mánudag.
Spænski boltinn Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Fótbolti Fleiri fréttir Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Sjá meira