KSÍ sendi frá sér í morgun viðtal við Arnar Þór Viðarsson, þjálfara A-landsliðs karla. Í því viðtali virðist það ansi skýrt að enginn af þeim sjö leikmönnum sem eru á U21 aldri og eru í A-landsliðshópnum verði færðir í U21 liðið.
Hann talar um að allir leikmennirnir séu í mikilvægum hlutverkum hjá sér og verði það á þriðjudaginn þegar leikið verður gegn Albaníu. Ísland á ekki lengur möguleika á því að komast upp í A-deildina og talað um leikinn sem æfingaleik.
Arnar sjálfur segir að góð úrslit þýði möguleiki á að vera í 2. styrkleikaflokki fyrir EM 2024 dráttinn í næsta mánuði og svo varaleið inn á lokakeppnina í gegnum Þjóðadeildarumspilið.
Mikil umræða hefur verið um að réttast sé að styrkja U21-landsliðið með leikmönnum úr A-hópnum en U21 liðið leikur á þriðjudag seinni leikinn gegn Tékkum í umspili um sæti í lokakeppni EM. Margir telja það hag íslenska fótboltans að U21 liðið, sem tapaði 1-2 í fyrri leiknum, komist á EM.
Hákon Arnar Haraldsson, Ísak Bergmann Jóhannesson, Andri Lucas Guðjohnsen, Þórir Jóhann Helgason og Mikael Egill Ellertsson eru allir löglegir með U21 landsliðinu en eru í A-hópnum. Einnig markverðirnir Patrik Sigurður Gunnarsson og Elías Rafn Ólafsson.

Hér má sjá brot af umræðunni á Twitter:
Ég veit ekki hvernig svona virkar uppí KSÍ núna. Ég held þau geri ekkert en vissulega dauðafæri fyrir Arnar að sækja einhver nokkur stig frá þjóðinni.
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) September 24, 2022
Það hlýtur að vera að 3/4 fari yfir í
— Sigurdur Helgason (@14siggihelgason) September 24, 2022
U21. Því það er hagur íslenskrar knattspyrnu!
Athugasemdir