Dreifingardeila heim í hérað vegna skorts á sérfræðingi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. júní 2023 11:20 Skrifstofur Símans eru í Ármúla í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur ómerkt dóma í héraði og Landsrétti yfir Símanum fyrir brot gegn ákvæðum fjölmiðlalaga með því að beina viðskiptum Sjónvarps Símans að dótturfélagi sínu Mílu. Hæstiréttur telur að meðferð málsins hafi farið úr skorðum í héraði með því að kalla ekki til sérfróðan matsmann um fjölmiðlaumhverfi.
Forsaga málsins er sú að Síminn stöðvaði dreifingu á ólínulegu efni Sjónvarps Símans yfir kerfi Vodafone 1. október árið 2015. Í ákvörðun Fjarskiptastofnunar, sem þá hét Póst- og fjarskiptastofnun, var rakið að þeir sem vildu kaupa aðgang að ólínulegu sjónvarpsefni Símans, svonefndu Sjónvarpi Símans Premium, hefðu því síðan þurft að vera með myndlykil frá Símanum. Áskrift að efninu hafi því eingöngu verið í boði í gegnum dreifikerfi Símans og nær eingöngu á neti Mílu. Aðeins hægt að kaupa í gegnum fjarskiptanet Í málinu var því deilt um hvort að Síminn hafi brotið gegn ákvæði fjölmiðlalaga sem fjallar um að fjölmiðlaveitu sé óheimilt að beina viðskiptum viðskiptamanna að tengdu fjarskiptafyrirtæki. Síminn samdi ekki við Sýn annars vegar og Ljósleiðarann hins vegar um flutning og dreifingu á ólínulegu myndefni Símans; tímaflakk, frelsi og leigu á myndefni. Í dómi Landsréttar sagði að Síminn hefði framið brot gegn þessu ákvæði fjölmiðlalaga með því að hafa beint viðskiptum þeirra sem vildu kaupa aðgang að Sjónvarpi Símans Premium að dótturfélaginu Mílu enda hefði ekki verið unnt að kaupa efni úr efnisveitunni nema í gegnum þetta fjarskiptanet. Féllst Landsréttur því á niðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar og taldi engin efni til að hrófla við mati stofnunarinnar á fjárhæð sektarinnar upp á níu milljónir. Þessu vildi Síminn ekki una og fékk áfrýjunarleyfi í málinu til Hæstaréttar. Rétturinn tekur aðeins fyrir mál sem talin eru geta verið fordæmisgefandi eða hafa mikla þýðingu að fá leyst úr lagalegum álitamálum. Kröfum um rökstuðning ekki fullnægt Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að dómur Landsréttar hefði ekki fullnægt þeim kröfum sem gera yrði til rökstuðnings í dómi fyrir niðurstöðu um sönnunar- og lagaatriði samkvæmt lögum um einkamál. Þá taldi rétturinn að meðferð málsins hefði farið úr skorðum fyrir héraðsdómi með því að í niðurstöðu dómsins hefði verið farið út fyrir þann grundvöll sem aðilar höfðu markað málinu og hún reist á málsástæðu sem aðilar hefðu ekki byggt á. Ætla mætti að það hefði meðal annars verið vegna skorts á sérfræðilegri þekkingu á umhverfi fjarskipta í skilningi laga um fjölmiðla og samspili þeirra við reglur um fjölmiðlaveitur. Héraðsdómara hefði því borið að kveða til sérfróðan mann til dómstarfa. Ekki hefði verið hægt að bæta úr þeim galla á meðferð málsins í héraði fyrir Landsrétti. Dómur Landsréttar sem og dómur héraðsdóms voru því ómerktir og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar. Vísir er í eigu Sýnar sem er aðili að deilunni.
Dómsmál Fjarskipti Fjölmiðlar Tengdar fréttir Sekt Símans staðfest vegna dreifingar á Sjónvarpi Símans Premium Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi brotið gegn ákvæðum fjölmiðlalaga með því að beina viðskiptum Sjónvarps Símans að dótturfélagi sínu Mílu. Fjarskiptastofnun hafði gert Símanum að greiða 9 milljóna króna sekt vegna málsins sem Landsréttur staðfesti. 24. júní 2022 16:55 Síminn sektaður um níu milljónir fyrir ítrekað brot gegn fjölmiðlalögum Póst- og fjarskiptastofnun hefur lagt níu milljóna króna stjórnvaldssekt á Símann fyrir brot á fjölmiðlalögum. Stofnunin telur brot Símans hafa verið meðvituð og markviss, auk þess sem þau hafi haft umtalsverð skaðleg áhrif á fjarskiptamarkaðinn. 29. nóvember 2019 07:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Viðskipti innlent Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Viðskipti innlent Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Viðskipti innlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Áhorf á Eurovision hríðfellur Aukið atvinnuleysi Sjá meira
Sekt Símans staðfest vegna dreifingar á Sjónvarpi Símans Premium Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi brotið gegn ákvæðum fjölmiðlalaga með því að beina viðskiptum Sjónvarps Símans að dótturfélagi sínu Mílu. Fjarskiptastofnun hafði gert Símanum að greiða 9 milljóna króna sekt vegna málsins sem Landsréttur staðfesti. 24. júní 2022 16:55
Síminn sektaður um níu milljónir fyrir ítrekað brot gegn fjölmiðlalögum Póst- og fjarskiptastofnun hefur lagt níu milljóna króna stjórnvaldssekt á Símann fyrir brot á fjölmiðlalögum. Stofnunin telur brot Símans hafa verið meðvituð og markviss, auk þess sem þau hafi haft umtalsverð skaðleg áhrif á fjarskiptamarkaðinn. 29. nóvember 2019 07:00