Portúgalinn með hæstu sigurprósentuna

Bernardo Silva hefur spilað frábærlega með Manchester City.
Bernardo Silva hefur spilað frábærlega með Manchester City. AFP

Portúgalski miðjumaðurinn Bernardo Silva hefur leikið frábærlega með Englandsmeisturum Manchester City á tímabilinu og virðist sem liðinu sé ómögulegt að gera eitthvað annað en að vinna leiki þegar hann er á vellinum.

Það er enda nærri lagi þar sem Silva státar sig af bestu sigurprósentu í sögu ensku úrvalsdeildarinnar þegar leikmenn sem hafa leikið fleiri en 100 leiki eru taldir með.

Silva hefur unnið rétt tæplega 77 prósent af þeim 146 leikjum sem hann hefur spilað í deildinni, eða 112 leiki.

Hefur hann enda unnið ensku úrvalsdeildina á þremur af þeim fjóru heilu tímabilum sem hann hefur leikið með liðinu og freistar þess að vinna sinn fjórða titil á fimm tímabilum á yfirstandandi tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert