Aðeins stefnið stendur upp úr

Drangur sökk í höfninni á Stöðvarfirði í morgun.
Drangur sökk í höfninni á Stöðvarfirði í morgun. Ljósmynd Albert Geirsson

Unnið er að því að hreinsa upp lítilsháttar olíuleka frá stálbátnum Drangi sem sökk í höfninni á Stöðvarfirði upp úr klukkan sjö í morgun. Hrefna Ingólfsdóttir Melsteð, formaður björgunarsveitarinnar á Breiðdalsvík, segir að báturinn hafi sokkið mjög hratt og aðeins stefnið staðið upp er viðbragðsaðilar komu á staðinn.

Félagar í tveimur björgunarsveitum eru að störfum í höfninni á Stöðvarfirði ásamt slökkviliði og lögreglu auk áhafnar varðskipsins Þórs. 

Varðskipið Þór er komið til Stöðvarfjarðar.
Varðskipið Þór er komið til Stöðvarfjarðar. Ljósmynd Albert Geirsson

„Það gengur vel að tryggja að það sé sem minnst mengun, það er olíusmit frá honum,“ segir Hrefna. 

Varðskipið Þór var staðsett á Fárskrúðsfirði þegar báturinn sökk og var strax sendur léttabátur frá skipinu á Stöðvarfjörð. Síðan er Þór kominn á vettvang. 

Drangur sökk í höfninni á Stöðvarfirði snemma í morgun.
Drangur sökk í höfninni á Stöðvarfirði snemma í morgun. Ljósmynd Hrefna

Hrefna segir að ekki sé vitað hvers vegna Drangur sökk og ekki verði hægt að segja til um það fyrr en kafað verður niður að bátnum. Hún segir að það hafi verið hundleiðinlegt veður á þessum slóðum í nótt en hún viti ekki hvort það hafi spilað inn í. Enginn var um borð í Drangi þegar hann sökk þar sem áhöfnin var í leyfi um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert