Önfirski orkubóndinn segir að það þurfi lítið að smala Kristján Már Unnarsson skrifar 2. desember 2020 22:46 Birkir Þór Guðmundsson, raforkubóndi frá Hrauni á Ingjaldssandi við Önundarfjörð. Egill Aðalsteinsson Tveir bændur úr Önundarfirði, sem áður stunduðu sauðfjárrækt, kúabúskap og loðdýrarækt, eru alfarið orðnir raforkubændur. Þeir eru búnir að reisa þrjár smávirkjanir fyrir vestan og segjast lítið þurfa að smala.
Á Hvilftarströnd við ána Kaldá innan við Flateyri er nýlega risin lítil vatnsaflsvirkjun, sú þriðja sem Önfirðingarnir Birkir Þór Guðmundsson frá Ingjaldssandi og Ásgeir Mikkaelsson úr Breiðadal standa að, en stöðina mátti sjá í fréttum Stöðvar 2. „Við reistum hér tvær virkjanir í Önundarfirði 2018 og svo í Skutulsfirði, í Dagverðardal, 2019,“ segir Birkir Þór og bætir við að sú fjórða sé í bígerð í Gilsfirði. Stöðvarhúsið við Kaldá á Hvilftarströnd.Egill Aðalsteinsson Vatnsaflstöðin við Kaldá framleiðir allt að 400 kílóvött sem samsvarar orkuþörf um fimmtíu heimila og hinar eru litlu minni. „Við höfum þá trú að þessar virkjanir okkar á svæðinu geri ekkert annað en að styrkja hér raforkuöryggi inni í fjórðungnum.“ Okkur finnst athyglisvert að Önfirðingarnir Birkir og Ásgeir hafi alfarið snúið sér að orkubúskap. Virkjunin getur annað raforkuþörf um fimmtíu heimila.Egill Aðalsteinsson „Ásgeir félagi minn var bæði með sauðfé og kýr – var kúabóndi með myndarlegt kúabú á þeirra tíma mælikvarða. Ég bjó svo úti á Ingjaldssandi og var með loðdýr, af öllu, þar. Karl faðir minn bjó líka á Hrauni og var með sauðfjárbúskap,“ segir Birkir. Og það er stór munur að vera raforkubóndi. „Það er dálítið einfaldara þegar þetta er farið að snúast. Það þarf lítið að smala,“ svarar Birkir Þór. Hér má sjá frétt Stöðvar 2: Fjallað var um síðasta bóndann á Ingjaldssandi í tveimur þáttum á Stöð 2 árið 2014. Fyrri þáttinn má sjá hér: Síðari þáttinn má sjá hér:
Orkumál Vatnsaflsvirkjanir Ísafjarðarbær Landbúnaður Byggðamál Um land allt Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Hraun mjakast yfir varnargarð Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Innlent Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Innlent Fleiri fréttir Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkisstjórn eftir eigin höfði Sjá meira