Greindist ekki með hjartasjúkdóm

Evan Ndicka.
Evan Ndicka. AFP/Tiziana Fabi

Hjartavandamál urðu þess ekki valdandi að franski knattspyrnumaðurinn Evan Ndicka, varnarmaður Roma, hné niður í leik liðsins gegn Udinese í Udine um liðna helgi.

Í yfirlýsingu frá Roma í gær kom fram að Ndicka væri með meðvitund og hefði það prýðilegt. Í yfirlýsingu frá félaginu sem birtist í dag kom fram að rannsóknir hafi ekki leitt hjartasjúkdóm í ljós.

Rannsóknir hafi hins vegar sýnt fram á áverka í brjóstholi og smávægilega lungnabólgu í vinstra lunga.

Búið er að útskrifa Ndicka af sjúkrahúsi í Udine og mun hann á næstunni gangast undir frekari skoðanir í Róm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert