Erlent

Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokk­hólm

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Verið var að aka bílnum um borð í bílaferju ekki ósvipaða þessari hér.
Verið var að aka bílnum um borð í bílaferju ekki ósvipaða þessari hér. Getty/Miemo Penttinen

Karl og kona á 75. aldursári létust þegar bíll hafnaði í sjónum nálægt Stokkhólmi við Furusund. Verið var að aka bílnum um borð í ferju þegar bíllinn fór fyrir borð.

SVT greinir frá því að fólkið hafi verið á kafi í um fimmtíu mínútur. Kafarar hafi sótt fólkið og þau flutt á sjúkrahús með þyrlum. Mats Eriksson fjölmiðlafulltrúi sænsku lögreglunnar segir við SVT að það sé óljóst hvernig þetta hafi komið til. Lögreglan ætlar að hífa bílinn upp á morgun og athuga hvort að þar finnist merki um bilanir sem gætu hafa valdið slysinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×