Mikið álag í sýnatökum og margir vilja fjórða bóluefnaskammtinn Fanndís Birna Logadóttir skrifar 24. júní 2022 13:01 Bólusetningar og sýnatökur fara nú fram hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu í Mjódd. Vísir/Egill Mikil aðsókn er nú í sýnatökur þar sem töluverður fjöldi fólks er enn að greinast með Covid. Áhersla hefur verið lögð á fjórða bóluefnaskammtinn og hafa nokkur þúsund manns mætt í bólusetningu í vikunni hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
Einstaklingum sem greinast nú með Covid hefur farið fjölgandi undanfarna daga en í gær greindust 272 manns samkvæmt bráðabirgðartölum almannavarna. 41 er nú á sjúkrahúsi með Covid, þar af tveir á gjörgæslu. Langflestir eru á Landspítala, alls 31. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdarstjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að eftirspurnin eftir sýnatökum sé að aukast samhliða þessu og því hafi opnunartíminn verið lengdur. „Núna er opið hjá okkur alla daga til klukkan þrjú og það er hér í anddyrinu í Álfabakka 16 þar sem fólk getur komið í PCR sýnatöku og það hefur greinilega verið að aukast núna undanfarið,“ segir Ragnheiður. Um það bil 500 manns mæta nú í sýnatöku daglega og fer það að nálgast þolmörk. „Vonandi fer það ekki mikið meira en það, þá held ég að við séum sprungin hérna í húsnæðinu ef það verður mikið meira. Þannig við svona vonum að þetta hangi í þessu og svo fari þetta bara niður aftur,“ segir Ragnheiður en þau eru með það til skoðunar hvort færa þurfi sýnatökustaðinn. Þúsund manns á dag í bólusetningu Heilbrigðisyfirvöld binda nú miklar vonir við fjórða skammt bóluefnisins og hefur sóttvarnalæknir hvatt fólk til að þiggja þann skammt, sérstaklega þá sem eru 80 ára og eldri, sem og yngri einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma. „Við höfum fengið til okkar hérna á höfuðborgarsvæðinu sirka þúsund manns á hverjum degi þannig við erum komin langt með þennan hóp sem er 80 ára og eldri. Þegar við byrjuðum í byrjun vikunnar voru sex þúsund manns eftir á þeim lista þannig hann fer hratt niður,“ segir Ragnheiður. Mætingin hefur verið mjög góð að sögn Ragnheiðar og er ekki aðeins um að ræða eldri einstaklinga, heldur einnig yngra fólk sem hefur til að mynda ekki fengið Covid. Allt er gert til að bóluefni fari ekki til spillis, til að mynda var boðið upp á umfram skammta í Mjóddinni í gær. „Þetta var bara mjög vinsælt, það stöldruðu margir við og þáðu skammtinn þannig það var mjög skemmtileg uppákoma hjá okkur í gær,“ segir Ragnheiður. Heilsugæslan verður með opið hús til 1. júlí og er nóg til af bóluefni. Ragnheiður segir þau geta sinnt öllum þeim sem mæta, en mönnun er helsti takmarkandi þátturinn. „Fólk er náttúrulega farið í sumarfrí, og það kannski bara strandar á því en síðan sjáum við bara til hvað verður með haustinu, hvort það verði farið í almennar bólusetningar með fjórða skammtinn.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Heilsugæsla Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira