Fótbolti

Sentist með ísskápa en varð svo hetja AC Milan í Meistaradeildinni

Sindri Sverrisson skrifar
Junior Messias fagnar markinu mikilvæga gegn Atlético Madrid í gærkvöld. Saga hans er stórmerkileg.
Junior Messias fagnar markinu mikilvæga gegn Atlético Madrid í gærkvöld. Saga hans er stórmerkileg. Getty/Irina R.Hipolito

Fyrir þremur árum sá Junior Messias fyrir sér með því að sendast með ísskápa og uppþvottavélar. Í gær var þessi þrítugi Brasilíumaður hetja AC Milan í dýrmætum sigri gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu í fótbolta.

Er hægt að fara frá því að spila í ítölsku D-deildinni, orðinn 27 ára gamall, í að spila með einu sögufrægasta og besta liði Ítalíu, í bestu deild heims? Svarið er já.

„Mig langaði að gráta. Allt sem ég hef gengið í gegnum flaug í gegnum hausinn. Miklar tilfinningar. Ég hugsaði um Guð. Öll mín saga er skrifuð af honum,“ sagði Messias í mikilli geðshræringu eftir leik í gærkvöld.

Hann skoraði eina mark leiksins, í sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni, þegar Milan vann Atlético á útivelli 1-0. Sigurinn gaf Milan möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit.

Messias flutti tvítugur frá Brasilíu til Ítalíu ásamt konu sinni og barni, til móts við bróður sinn í Tórínó. Þar lék hann sér í fótbolta með áhugamannaliði en starfaði sem fyrr segir sem sendill og einnig í byggingavinnu.

Alveg fram yfir tímabilið 2017-18 hafði Messias ekki leikið í sterkari deild en ítölsku D-deildinni. Þar spilaði hann með Gozzano, eftir að hafa einnig leikið með Chieri og Casale.

Messias komst með Gozzano upp í C-deild sumarið 2018 og lék þar í hálft ár áður en Crotone ákvað að festa kaup á honum. Þar skoraði hann sex mörk og átti sex stoðsendingar, í 34 leikjum, og átti ríkan þátt í að koma liðinu upp í efstu deild.

Suárez og Zlatan en Messias skoraði

Messias lék því sína fyrstu leiki í ítölsku A-deildinni á síðustu leiktíð, og reyndist fullfær um að spila þar. Hann skoraði níu mörk og átti fjórar stoðsendingar. Þó að Crotone hafi fallið þá var Messias búinn að stimpla sig inn, og AC Milan hafði samband og fékk hann til sín að láni í sumar.

Eftir að hafa fengið að koma inn á í tveimur leikjum hjá Milan í ítölsku A-deildinni, kom Messias inn á í sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni í gær. Og þó að kappar á borð við Zlatan Ibrahimovic, Luis Suárez, Olivier Giroud og Antoine Griezmann hafi verið á vellinum í Madrid þá var Messias sá eini sem kom boltanum í netið. Spennandi verður að sjá hvað Guð er með í huga varðandi næsta kafla á þessum óhefðbundna knattspyrnuferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×