Landsliðsmaðurinn markahæstur í stórsigri

Bjarki Már Elísson í leik með íslenska landsliðinu.
Bjarki Már Elísson í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/Kristján Orri

Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handknattleik, átti stórleik fyrir Veszprém þegar liðið vann öruggan sigur á Balatonfüredi, 33:20, í ungversku efstu deildinni í kvöld.

Veszprém er sem fyrr á toppi deildarinnar en nú með 46 stig, sex stigum fyrir ofan Pick Szeged í öðru sæti þegar Veszprém á þrjá leiki eftir og Szeged fjóra.

Bjarki Már var markahæstur allra í leiknum með sjö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert