Tilkynnt um hátt í hundrað alvarleg atvik þar sem dauðsföll urðu Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 27. mars 2024 18:34 Hátt í hundrað manns hafa látist vegna alvarlegra atvika í íslenskri heilbrigðisþjónustu á síðustu þremur árum. Vísir Hátt í hundrað tilkynningar hafa borist til Landlæknis um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu þar sem dauðsföll hafa orðið síðustu ár. Tilkynningum um alvarleg atvik fjölgaði um fimmtung á síðasta ári borið saman við árið á undan samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu. Heilbrigðisstofnunum ber lögum samkvæmt að skrá öll óvænt atvik sem verða í heilbrigðisþjónustu, vinna úr þeim og tilkynna til embættis Landlæknis. Embættið sér svo um að taka tölurnar saman og heldur utan um rannsókn málanna. Ber að láta sjúklinga eða aðstandendur vita Alvarlegt atvik í heilbrigðisþjónustu er lögum samkvæmt skilgreint sem óvænt atvik sem valdið hefur eða hefði getað valdið sjúklingi alvarlegu tjóni, svo sem dauða eða varanlegum örkumlum. Jafnframt skal lögum samkvæmt upplýsa sjúkling um hið óvænta atvik án ástæðulausra tafa og nánustu aðstandendur hans þegar það á við. Landlæknir fær tilkynningar frá heilbrigðisstofnunum um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu á landinu. Síðustu þrjú ár hefur 91 dauðsfall verið flokkað sem alvarlegt atvik. Vísir Samkvæmt upplýsingum frá Landlækni var fjöldi alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu sextíu á síðasta ári, þau voru 47 árið 2022 og 64 árið 2021. Af þessum alvarlegu atvikum hafa árlega verið um og yfir þrjátíu tilkynningar þar sem um dauðsfall var að ræða síðustu þrjú ár. Veistu meira um málið? Viljir þú koma upplýsingum um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu á framfæri vinsamlega sendu á ritstjórn@visir.is. Fullum trúnaði heitið. Örkuml ekki sérstaklega skráð Samkvæmt skriflegu svari Landlæknisembættisins er ekki mögulegt að fá upplýsingar um tilkynningar um alvarleg atvik þar sem dauðsföll höfðu orðið á heilbrigðisstofnunum fyrir 2021 án frekari úrvinnslu á gögnum en fréttastofa óskaði eftir upplýsingum fyrir síðustu fimm ár. Þá heldur embættið ekki skrá yfir örkuml sem kunna að verða vegna alvarlegra atvika. Fram kemur í svari embættisins við fyrirspurn fréttastofu að unnið sé að því að innleiða nýtt skráningarkerfi sem muni auðvelda alla tölfræðiúrvinnslu. Landlæknir gaf ekki kost á viðtali vegna málsins í dag. Þá var ekki unnt að fá viðbrögð frá stjórnendum Landspítalans sem er stærsta heilbrigðisstofnun landsins, vegna málsins í dag. Heilbrigðismál Heilsugæsla Heilbrigðisstofnun Norðurlands Heilbrigðisstofnun Suðurlands Heilbrigðisstofnun Austurlands Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Sjá meira
Heilbrigðisstofnunum ber lögum samkvæmt að skrá öll óvænt atvik sem verða í heilbrigðisþjónustu, vinna úr þeim og tilkynna til embættis Landlæknis. Embættið sér svo um að taka tölurnar saman og heldur utan um rannsókn málanna. Ber að láta sjúklinga eða aðstandendur vita Alvarlegt atvik í heilbrigðisþjónustu er lögum samkvæmt skilgreint sem óvænt atvik sem valdið hefur eða hefði getað valdið sjúklingi alvarlegu tjóni, svo sem dauða eða varanlegum örkumlum. Jafnframt skal lögum samkvæmt upplýsa sjúkling um hið óvænta atvik án ástæðulausra tafa og nánustu aðstandendur hans þegar það á við. Landlæknir fær tilkynningar frá heilbrigðisstofnunum um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu á landinu. Síðustu þrjú ár hefur 91 dauðsfall verið flokkað sem alvarlegt atvik. Vísir Samkvæmt upplýsingum frá Landlækni var fjöldi alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu sextíu á síðasta ári, þau voru 47 árið 2022 og 64 árið 2021. Af þessum alvarlegu atvikum hafa árlega verið um og yfir þrjátíu tilkynningar þar sem um dauðsfall var að ræða síðustu þrjú ár. Veistu meira um málið? Viljir þú koma upplýsingum um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu á framfæri vinsamlega sendu á ritstjórn@visir.is. Fullum trúnaði heitið. Örkuml ekki sérstaklega skráð Samkvæmt skriflegu svari Landlæknisembættisins er ekki mögulegt að fá upplýsingar um tilkynningar um alvarleg atvik þar sem dauðsföll höfðu orðið á heilbrigðisstofnunum fyrir 2021 án frekari úrvinnslu á gögnum en fréttastofa óskaði eftir upplýsingum fyrir síðustu fimm ár. Þá heldur embættið ekki skrá yfir örkuml sem kunna að verða vegna alvarlegra atvika. Fram kemur í svari embættisins við fyrirspurn fréttastofu að unnið sé að því að innleiða nýtt skráningarkerfi sem muni auðvelda alla tölfræðiúrvinnslu. Landlæknir gaf ekki kost á viðtali vegna málsins í dag. Þá var ekki unnt að fá viðbrögð frá stjórnendum Landspítalans sem er stærsta heilbrigðisstofnun landsins, vegna málsins í dag.
Veistu meira um málið? Viljir þú koma upplýsingum um alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu á framfæri vinsamlega sendu á ritstjórn@visir.is. Fullum trúnaði heitið.
Heilbrigðismál Heilsugæsla Heilbrigðisstofnun Norðurlands Heilbrigðisstofnun Suðurlands Heilbrigðisstofnun Austurlands Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Sjá meira