Fluttu kúbanskan andófsmann nauðugan á sjúkrahús Kjartan Kjartansson skrifar 3. maí 2021 15:41 Lögregla gerði húsleit á heimili Luis Manuel Otero Alcántara í Havana í apríl. Honum var í reynd haldið í stofufangelsi þar en lögreglumenn eru einnig sagðir hafa fjarlægt eða eyðilagt listaverk hans. Vísir/EPA Yfirvöld á Kúbu létu færa þekktan andófsmann sem hefur verið í hungurverkfalli nauðugan á sjúkrahús. Vinir hans og vandamenn óttast um heilsu hans en segjast ekki hafa fengið að hafa samskipti við hann.
Luis Manuel Otero Alcántara leiðir San Isidro-hreyfinguna (SIM), hóp listamanna, blaðamanna og menntamanna sem berst fyrir tjáningarfrelsi og lýðræði á Kúbu. Kúbönsk stjórnvöld saka SIM um að vera handbendi Bandaríkjastjórnar sem grafi undan ríkisvaldinu en því hafna þau. Kommúnistastjórnin hneppti Otero Alcántara í stofufangelsi í reynd eftir að húsleit var gerð á heimili hans í síðasta mánuði. Hann hóf þá hungurverkfall til að krefjast þess að yfirvöld skiluðu honum listaverkum, greiddu honum bætur, virtu tjáningarfrelsi hans og að lögregla hætti að áreita hann. Breska ríkisútvarpið BBC segir að lögregla hafi þá vaktað heimili hans og ekki leyft neinum að koma þangað eða fara. Í gær var listamaðurinn svo fluttur á sjúkrahús, að sögn heilbrigðisyfirvalda í höfuðborginni Havana. Hann hafi ekki sýnt nein merki um vannæringu eða steinefnaskort en hann hafi engu að síður verið lagður inn á sjúkrahúsið. Hann sé við stöðuga heilsu. Félagar í SIM segja aftur á móti að Otero Alcántara hafi verið fluttur á sjúkrahúsið með valdi fyrir dagrenningu í gær. Þeir krefjast þess að yfirvöld leggi fram skýrar sannanir um að hann sé við góða heilsu. Samtökin setja spurningarmerki við að hann sé sagður við góða heilsu þrátt fyrir að hafa neitað sér um vott og þurrt í sjö daga. Fullyrða þau að undanfarna daga hafi Otero Alcántara sýnt einkenni um ofþornun, þar á meðal skæðan kviðverk. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa krafist upplýsinga um hvar Otero Alcántara er niður kominn og að fjölskylda hans fái að heimsækja hann. Þá hafa bandarísk og evrópsk yfirvöld lýst áhyggjum af afdrifum hans.
Kúba Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Sjá meira