Hundrað kíló af kókaíni eða tíu? Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. janúar 2023 10:36 Unnsteinn Örn Elvarsson, Arnar Kormákur Friðriksson og Almar Möller, verjendur sakborninga í málinu. Vísir Aðalmeðferð í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar heldur áfram í dag þegar lögreglumenn sem komu að rannsókn málsins og hollenskir tollverðir gefa skýrslu. Verjendur munu leggja áherslu á að ekki sé hægt að færa sönnur á að lagt hafi verið hald á hundrað kíló af kókaíni.
Héraðsdómari tók skýrt fram við upphaf aðalmeðferðar á fimmtudag að fjölmiðlar mættu ekki greina frá því sem fram kæmi í skýrslutökum fyrr en að lokinni aðalmeðferð. Héraðsdómur hefur samkvæmt elleftu grein laga um meðferð sakamála heimild til að banna að skýrt verði frá því sem gerist þar ef ætla megi að frásögn geti leitt til sakarspjalla eða valdið vandamönnum sakbornings, brotaþola eða öðrum sem ekki eru fyrir sökum hafðir þjáningum eða verulegum óþægindum. Þungir dómar líklegir Um er að ræða langstærsta kókaínmál sem komið hefur upp hér á landi. Fjórum sakborningum í málinu er gefið að sök að hafa flutt inn um hundrað kíló af kókaíni, sem falin voru í sjö trjádrumbum. Efnunum var komið fyrir í gámum í Brasilíu en sendingin fór fyrst til Hollands. Lögreglan á Íslandi komst á snoðir um smyglið vegna rannsóknar á skipulagðri brotastarfsemi og lét tollverði í Rotterdam í Hollandi vita. Kókaíninu var skipt út fyrir gerviefni áður en gámurinn var sendur áfram til Íslands. Reikna má með þungum dómum verði mennirnir fundnir sekir. Þeir hafa allir játað aðkomu sína að málinu en afstaða þeirra til ákærunnar er þó ólík. Mennirnir fjórir eru allir ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og tilraun til stórfellds fíkniefnabrots. Þeir eru einnig allir ákærðir fyrir peningaþvætti. Sá liður hljóðar upp á samtals 63 milljónir. Mennirnir eru á aldrinum 27 til 68 ára. Þeir eru: Páll Jónsson, timburinnflytjandi á sjötugsaldri. Fyrirtæki hans, „Hús og Harðviður“ var samkvæmt ákæru notað til peningaþvættis. Jóhannes Páll Durr er 28 ára. Hann er best þekktur sem liðsstjóri íslenska landsliðsins í efótbolta. Daði Björnsson, þrítugur karlmaður. Hann er einnig ákærður fyrir kannabisræktun og vörslu maríjúana. Birgir Halldórsson, 27 ára karlmaður. Búið að farga efninu? Samkvæmt heimildum fréttastofu gera verjendur mannanna fjögurra athugasemd við það að mennirnir séu ákærðir fyrir innflutning á hundrað kílóum. Telja þeir að lögregla hafi aðeins opnað brot af pakkningunum sem fundust í Rotterdam. Restinni hafi verið fargað. Hér má sjá pakkningarnar sem gerðar voru upptækar í Rotterdam. Um hundrað kíló. Kókaín fannst í hluta pakkninganna en verjendur vilja meina að þær hafi ekki allar verið skoðaðar til að ganga úr skugga um að þar væri kókaín að finna. Fyrir vikið sé ekki hægt að færa sönnur á að um hafi verið að ræða hundrað kíló af kókaíni. Allar pakningarnar hafi ekki verið skoðaðar í þaula. Þegar kemur að því að ákveða refsingu mannanna skiptir lykilmáli hvert magnið var sem mennirnir eru sakaðir um að hafa flutt til landsins. Hámarksrefsing fyrir fíkniefnalagabrot er tólf ára fangelsi. Tveir hlutu þá refsingu í Saltdreifaramálinu svokallaða í haust. Skýrari mynd mun komast á þetta allt saman við aðalmeðferðina þegar skýrslutökur yfir lögreglumönnum og hollenskum tollverðum fara fram. Uppfært klukkan 11:40 Skýrslutökum yfir íslenskum lögreglumönnum sem komu að rannsókn málsins er lokið í dag. Aðalmeðferð í málinu verður fram haldið 9. og 10. febrúar þar sem fleiri gefa skýrslur, þeirra á meðal tollverðirnir í Hollandi og fleiri íslenskir lögreglumenn. Dómari í málinu ítrekaði við blaðamenn blátt bann við fréttaflutningi af því sem fram kom við aðalmeðferð málsins.
Stóra kókaínmálið 2022 Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Erlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira