Þorvaldur íhugar að leggja flautuna á hilluna: Ekki eins og maður poppi eftir svona leik og hafi gaman Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. september 2021 20:16 Þorvaldur Árnason er hér í miðjunni á djöfulganginum sem átti sér stað í Frostaskjóli. Stöð 2 Sport „Ég skal bara viðurkenna það að manni líður bölvanlega,“ sagði Þorvaldur Árnason, dómari leiks KR og Víkings í Pepsi Max deild karla er hann ræddi tilfinningar sínar að leik loknum. Allt sauð upp úr í leik liðanna þar sem Víkingur van dramatískan 2-1 sigur og tyllti sér á topp deildarinnar. Þorvaldur ræddi við Ríkharð Óskar Guðnason, Rikka G, um það sem átti sér stað í leik KR og Víkings er liðin mættust í Frostaskjóli á sunnudag. Undir lok leiks sauð einfaldlega allt upp úr og brutust út slagsmál milli leikmanna liðanna. „Það er ekki eins og maður flauti af eftir svona leik, poppi og hafi gaman. Ætli ég hafi ekki sofnað hálf sex í nótt og ég skal bara viðurkenna að það er ekki auðvelt að koma heim til átta ára drengsins síns – sem er mikill fótboltaáhugamaður - og útskýra það sem fór fram þarna. Ætla að vona að ég þurfi aldrei að gera það aftur.“ „Stutta svarið, já. Ég er ennþá að hugsa,“ sagði Þorvaldur aðspurður hvort hann hefði hugsað af hverju hann væri að standa í þessu eftir allan hamaganginn vestur í bæ. „Við sjáum til með það,“ var svarið er Rikki spurði hvort Þorvaldur yrði ekki áfram dómari á næstu leiktíð. „Formaður dómaranefndar er dómari og var á vellinum fyrir tveimur eða þremur árum síðan og þekkir þetta þannig hann hringir og hjálpar en stundum er nóg komið og það er bara eitthvað sem maður þarf að gera upp við sig með tíð og tíma.“ „Ég er settur á leik en við sjáum til hvort ég dæmi,“ sagði Þorvaldur að endingu aðspurður hvort hann væri skráður á leik í lokaumferð Pepsi Max deildarinnar sem fram fer næsta laugardag. Klippa: Þorvaldur íhugar að hætta
Þorvaldur ræddi við Ríkharð Óskar Guðnason, Rikka G, um það sem átti sér stað í leik KR og Víkings er liðin mættust í Frostaskjóli á sunnudag. Undir lok leiks sauð einfaldlega allt upp úr og brutust út slagsmál milli leikmanna liðanna. „Það er ekki eins og maður flauti af eftir svona leik, poppi og hafi gaman. Ætli ég hafi ekki sofnað hálf sex í nótt og ég skal bara viðurkenna að það er ekki auðvelt að koma heim til átta ára drengsins síns – sem er mikill fótboltaáhugamaður - og útskýra það sem fór fram þarna. Ætla að vona að ég þurfi aldrei að gera það aftur.“ „Stutta svarið, já. Ég er ennþá að hugsa,“ sagði Þorvaldur aðspurður hvort hann hefði hugsað af hverju hann væri að standa í þessu eftir allan hamaganginn vestur í bæ. „Við sjáum til með það,“ var svarið er Rikki spurði hvort Þorvaldur yrði ekki áfram dómari á næstu leiktíð. „Formaður dómaranefndar er dómari og var á vellinum fyrir tveimur eða þremur árum síðan og þekkir þetta þannig hann hringir og hjálpar en stundum er nóg komið og það er bara eitthvað sem maður þarf að gera upp við sig með tíð og tíma.“ „Ég er settur á leik en við sjáum til hvort ég dæmi,“ sagði Þorvaldur að endingu aðspurður hvort hann væri skráður á leik í lokaumferð Pepsi Max deildarinnar sem fram fer næsta laugardag. Klippa: Þorvaldur íhugar að hætta Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla KR Víkingur Reykjavík Tengdar fréttir Vítaspyrnurnar sem breyttu gangi máli á Íslandsmótinu Sviptingar urðu á Íslandsmóti karla í fótbolta í gær er topplið deildarinnar fóru á erfiða útivelli. Eftir að hafa setið fastur yfir Smáranum í Kópavogi sveiflaðist pendúllinn og bendir nú á Fossvoginn þar sem ótrúlegir hlutir gætu gerst á næstu dögum. 20. september 2021 07:00 „Ef ég ætlaði að kýla einhvern hefði þetta endað öðruvísi“ „Ég var ekki að sveifla hnefanum eða kýla neinn í andlitið. Stundum sér maður rautt en ég ætlaði mér bara að hrinda honum í burtu og gerði það óvarlega, ásamt fleirum í þessu atviki,“ segir Kjartan Henry Finnbogason um sinn þátt í ryskingunum í lok leik KR og Víkings í gærkvöld. 20. september 2021 12:37 Mest lesið Uppgjör: Keflavík - Stjarnan 81-76 | Háspennuleikur og Keflavík komið í úrslit Körfubolti Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila Enski boltinn Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Enski boltinn Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Enski boltinn Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Enski boltinn Reyndi að líma fótinn sinn fastan í stúkunni Sport Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Enski boltinn „Vonandi gerir hann aftur eitthvað svona heimskulegt“ Körfubolti „Ekki nógu illa gefinn til að átta mig ekki á því“ Körfubolti Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla Sjá meira
Vítaspyrnurnar sem breyttu gangi máli á Íslandsmótinu Sviptingar urðu á Íslandsmóti karla í fótbolta í gær er topplið deildarinnar fóru á erfiða útivelli. Eftir að hafa setið fastur yfir Smáranum í Kópavogi sveiflaðist pendúllinn og bendir nú á Fossvoginn þar sem ótrúlegir hlutir gætu gerst á næstu dögum. 20. september 2021 07:00
„Ef ég ætlaði að kýla einhvern hefði þetta endað öðruvísi“ „Ég var ekki að sveifla hnefanum eða kýla neinn í andlitið. Stundum sér maður rautt en ég ætlaði mér bara að hrinda honum í burtu og gerði það óvarlega, ásamt fleirum í þessu atviki,“ segir Kjartan Henry Finnbogason um sinn þátt í ryskingunum í lok leik KR og Víkings í gærkvöld. 20. september 2021 12:37