Lögreglan leitar tíu manna sem tóku þátt í óeirðum við Wembley Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 18. júlí 2021 13:57 Óeirðir brutust út víða um Lundúnir eftir úrslitaleikinn milli Englands og Ítalíu síðastliðinn sunnudag. EPA-EFE/JOSHUA BRATT Lögreglan í Lundúnum hefur birt myndir af tíu mönnum sem tóku þátt í ofbeldi og óeirðum á Wembley leikvanginum í Lundúnum á úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu um síðustu helgi.
Tveir öryggisverðir á Wembley voru handteknir í gærmorgun grunaðir um að hafa hleypt æstum fótboltaáhugamönnum inn á völlinn án þess að þeir ættu miða á leikinn. Lögreglan segir að mennirnir tíu sem hún leitar hafi svör við spurningum sem brenni á lögreglunni. Fréttastofa Guardian greinir frá. Úrslitaleikurinn fór fram í Lundúnum síðastliðinn sunnudag og var mikill æsingur meðal fótboltabulla. Hópur fótboltaaðdáenda brutu sér leið inn á Wembley áður en úrslitaleikurinn milli Englands og Ítalíu hófs. Miklar óeirðir tóku við eftir leikinn, ítalskir áhorfendur voru barðir og óorðum hreytt að þeim og tapsárir Englendingar réðust inn á ítalska veitingastaði og sneru þar öllu á hvolf Seint á sunnudagskvöld tilkynnti lögreglan í Lundúnum að hún væri þegar farin að fara yfir margra klukkustunda efni úr eftirlitsmyndavélum og búkmyndavélum lögreglumanna við Wembley. „Áfram verður unnið að því að bera kennsl á fólk sem talið er hafa brotið lög,“ sagði lögreglan í tilkynningu. „Rannsóknin er á frumstigi og frekari beiðnir og handtökur munu fylgja.“ Fimmtíu og einn var handtekinn í byrjun vikunnar í Lundúnum, þar á meðal 26 við Wembley leikvanginn.
England EM 2020 í fótbolta Bretland Tengdar fréttir Öryggisverðir reyndu að selja passann sinn á úrslitaleikinn Tveir öryggisverðir á þjóðarleikvangi Englendinga, Wembley, hafa verið handteknir eftir að þeir reyndu að selja passann sinn á úrslitaleik Evrópumótsins um síðustu helgi. 18. júlí 2021 10:16 Drakk óhóflega, neytti kókaíns og stakk blysi í rassinn á sér en sér ekki eftir neinu Gífurleg drykkja fór fram í London síðasta sunnudag þegar úrslitaleikur Evrópumótsins í fótbolta fór þar fram. Myndir og myndbönd af drykkjulátum og skemmdarverkum breskra fótboltabullna hafa vakið mikla athygli og fara sem eldur í sinu um internetið. Einn maður vakti sérstaka athygli þegar myndir af honum með neyðarblys í rassi fóru í dreifingu. 15. júlí 2021 11:41 Tugir handteknir, slasaðir lögreglumenn og rasísku níði rignir Rasískum skilaboðum hefur ringt yfir þá þrjá ensku landsliðsmenn í knattspyrnu sem brenndu af vítaspyrnum sínum í úrslitaleik EM karla í gærkvöldi. Forsætisráðherra Bretlands fordæmir hatursorðræðuna en sætir sjálfur gagnrýni. Nítján lögreglumenn slösuðust í átökum við fótboltabullur og voru 49 handteknir. 12. júlí 2021 12:32 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Sjá meira
Öryggisverðir reyndu að selja passann sinn á úrslitaleikinn Tveir öryggisverðir á þjóðarleikvangi Englendinga, Wembley, hafa verið handteknir eftir að þeir reyndu að selja passann sinn á úrslitaleik Evrópumótsins um síðustu helgi. 18. júlí 2021 10:16
Drakk óhóflega, neytti kókaíns og stakk blysi í rassinn á sér en sér ekki eftir neinu Gífurleg drykkja fór fram í London síðasta sunnudag þegar úrslitaleikur Evrópumótsins í fótbolta fór þar fram. Myndir og myndbönd af drykkjulátum og skemmdarverkum breskra fótboltabullna hafa vakið mikla athygli og fara sem eldur í sinu um internetið. Einn maður vakti sérstaka athygli þegar myndir af honum með neyðarblys í rassi fóru í dreifingu. 15. júlí 2021 11:41
Tugir handteknir, slasaðir lögreglumenn og rasísku níði rignir Rasískum skilaboðum hefur ringt yfir þá þrjá ensku landsliðsmenn í knattspyrnu sem brenndu af vítaspyrnum sínum í úrslitaleik EM karla í gærkvöldi. Forsætisráðherra Bretlands fordæmir hatursorðræðuna en sætir sjálfur gagnrýni. Nítján lögreglumenn slösuðust í átökum við fótboltabullur og voru 49 handteknir. 12. júlí 2021 12:32