„Þetta voru losaraleg tímamörk“ Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 26. september 2022 18:51 Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi telur að almenningur fái að sjá skýrsluna í október. Vísir/Vilhelm Almenningur þarf enn að bíða eftir Íslandsbankaskýrslunni. Nú er gert ráð fyrir því að skýrslan verði gerð opinber í október en í upphafi var stefnt að því að skýrslan fengi að líta dagsins ljós í júní. Yfirferð Ríkisendurskoðunar hefur tekið töluvert meiri tíma en áætlað var í upphafii en íkisendurskoðandi segir að töfin eigi sér málefnalegar skýringar.
22,5 prósenta hlutur úr Íslandsbanka var seldur í lokuðu útboði í lok mars og mikil umræða skapaðist í apríl með tilheyrandi mótmælum á Austurvelli. Skýrsla var þá boðuð í júní, en hefur svo dregist fram í júlí, svo ágúst. Í september var fullyrt að skýrslan yrði tilbúin fyrir lok þess mánaðar. Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi segir í samtali við fréttastofu að verið sé að reka smiðshöggið á skýrsluna innanhúss hjá Ríkisendurskoðun. Að því loknu verði skýrslan send forseta Alþingis, sem sendir skýrsluna áfram til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. „Þetta er bara vinna sem tekur sinn tíma, það þarf að vanda til. Og það eru málefnalegar skýringar á þeim tíma sem þetta hefur tekið og ég mun gera þinginu grein fyrir því þegar þar að kemur. Það er aldrei þannig að skýrslurnar okkar séu með einhvern fyrir fram ákveðinn útgáfudag. Þetta voru losaraleg tímamörk - júnímánuður - sem var gefinn upp í upphafi,“ segir Guðmundur. Ljóst að almenningur fái ekki að sjá skýrsluna strax Hann bætir við að komið hafi í ljós að verkefnið hafi verið umfangsmeira en talið var í upphafi. „Það er alveg ljóst að skýrslan er ekki að koma fyrir sjónir almennings fyrr en að einhverjum tíma liðnum, sem ég hef ekki fulla stjórn á - það ræðst af málsmeðferð þingsins. Hins vegar hef ég ekki ástæðu til að ætla annað en að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd muni taka skýrsluna fyrir um leið og hún liggur fyrir,“ segir Guðmundur. Hann telur að almenningur fái að sjá skýrsluna í fyrri hluta október. Finnst þér líklegt að tímamörkin standist? „Já, þau standast. Skýrslan er á lokametrunum hjá okkur og ef að mönnum finnst ég vera búinn að segja það lengi þá er þetta langhlaup og lokametrarnir hafa verið svolítið langir. Við erum að reka smiðshöggið á þetta innanhúss hjá okkur og svo fer þetta til umsagnar og þaðan til forseta. En það er í rauninni stutt í þetta.“
Salan á Íslandsbanka Íslenskir bankar Alþingi Íslandsbanki Efnahagsmál Tengdar fréttir Bjarni ekki stressaður fyrir skýrslunni um Íslandsbanka Fjármálaráðherra kveðst enn þeirrar skoðunar að íslenska ríkið eigi að selja þann 100 milljarða króna hlut sem það á eftir í Íslandsbanka. Hann segir að færð hafi verið ágæt rök fyrir því að rannsókn Ríkisendurskoðunar hafi tekið sinn tíma og vonast eftir uppbyggilegum ábendingum úr væntanlegri skýrslu. 11. september 2022 16:01 Stjórnsýsluúttekt á lokametrunum sem muni „vekja athygli“ Úttekt ríkisendurskoðunar á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka er á lokametrunum og styttist mjög í að hún fari í umsagnarferli. Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, treysti sér ekki til að nefna dagsetningu í þessu samhengi en sagði ljóst að úttektin verði tilbúin fyrir lok þessa mánaðar. 6. september 2022 15:37 Tekist á um ríkiseign á bönkunum á Alþingi Þingmaður Viðreisnar telur enga ástæðu fyrir ríkið að halda áfram að eiga hlut í Íslandsbanka og Landsbanka. Hægt væri að leysa út allt að fjögur hundruð milljarða með sölu þeirra til greiðslu skulda. Forsætisráðherra vill hins vegar að ríkið haldi ráðandi eign í Landsbankanum. 16. september 2022 19:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Fleiri fréttir Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Sjá meira
Bjarni ekki stressaður fyrir skýrslunni um Íslandsbanka Fjármálaráðherra kveðst enn þeirrar skoðunar að íslenska ríkið eigi að selja þann 100 milljarða króna hlut sem það á eftir í Íslandsbanka. Hann segir að færð hafi verið ágæt rök fyrir því að rannsókn Ríkisendurskoðunar hafi tekið sinn tíma og vonast eftir uppbyggilegum ábendingum úr væntanlegri skýrslu. 11. september 2022 16:01
Stjórnsýsluúttekt á lokametrunum sem muni „vekja athygli“ Úttekt ríkisendurskoðunar á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka er á lokametrunum og styttist mjög í að hún fari í umsagnarferli. Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, treysti sér ekki til að nefna dagsetningu í þessu samhengi en sagði ljóst að úttektin verði tilbúin fyrir lok þessa mánaðar. 6. september 2022 15:37
Tekist á um ríkiseign á bönkunum á Alþingi Þingmaður Viðreisnar telur enga ástæðu fyrir ríkið að halda áfram að eiga hlut í Íslandsbanka og Landsbanka. Hægt væri að leysa út allt að fjögur hundruð milljarða með sölu þeirra til greiðslu skulda. Forsætisráðherra vill hins vegar að ríkið haldi ráðandi eign í Landsbankanum. 16. september 2022 19:21