Samfélagið í Grindavík í sárum og bíður þess að skipverjinn finnist Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 5. desember 2022 11:38 Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík segir samfélagið harmi slegið vegna þessa hörmulega atburðar. Vísir/Arnar Samfélagið í Grindavík er í sárum eftir að sjómaður, búsettur í bænum, féll frá borði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa. Þetta segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík.
Maðurinn féll frá borði síðdegis á laugardag og hefur leit staðið yfir síðan þá. Landhelgisgæslan fer fyrir leitinni, sem heldur áfram í góðu leitarveðri í dag. Maðurinn var búsettur í Grindavík og línubáturinn, Sighvatur, í eigu útgerðarinnar Vísis hf. í Grindavík. „Samfélagið hér er náttúrulega bara í sárum vegna þessa hörmulega atburðar og nú er bara beðið eftir því að allur þessi stóri hópur skipa, báta og þyrlan finni skipverjann,“ segir Fannar í samtali við fréttastofu. Bænastund hafi verið haldin í Grindavíkurkirkju í gær sem vel hafi verið mætt í. Atburður sem þessi hafi mikil áhrif á lítið samfélag. „Já, þetta er mjög erfitt og bæði fjölskylda stór og vinir sem þekkjast hér frá ýmsum hliðum. Bæði áhöfn, útgerðin og fjölskylda sjómannsins eiga um mjög sárt að binda. Það er samhugur hjá fólki hérna og samheldni þegar svona hörmulegir atburðir verða hérna hjá okkur,“ segir Fannar. Þeim sem þurfi verði boðin áfallahjálp. „Það er reynt að hjálpa viðkomandi eins og hægt er. Bæði kirkjan og fleiri sem koma að því, eftir því sem þörf er á. Síðan stöndum við bara saman hérna í Grindavík eins og við gerum á erfiðum tímum og reynum að styrkja hvert annað.“
Leit að skipverja á Sighvati GK-57 Grindavík Samgönguslys Sjávarútvegur Tengdar fréttir Leitarsvæðið á Faxaflóa stækkað í dag Leit að skipverja, sem féll útbyrðis af fiskiskipi á laugardag, heldur áfram í dag. Leitarsvæðið hefur verið stækkað nokkuð en bæði varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar og leitarskip björgunarsveita munu taka þátt í leitinni. 5. desember 2022 10:50 Sjómaðurinn sem leitað er var skipverji á Sighvati GK-57 í eigu Vísis hf. Sjómaðurinn sem leitað hefur verið að frá því á laugardag féll frá borði Sighvats GK-57, línuskips í eigu Vísis hf. Frá þessu er greint í tilkynningu frá útgerðarfélaginu sem Morgunblaðið hefur undir höndum. 5. desember 2022 08:47 Hefja leit að nýju við birtingu Leitinni að skipverja sem féll útbyrðis síðdegis í gær var frestað á tíunda tímanum í kvöld, en leit hefur ekki borið neinn árangur. Varðskipið Þór verður á svæðinu í nótt og mun áhöfn þess hefja leit aftur í birtingu. 4. desember 2022 22:44 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Innlent Fleiri fréttir Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Guðni forseti á samstöðutónleikum í Háskólabíó Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira
Leitarsvæðið á Faxaflóa stækkað í dag Leit að skipverja, sem féll útbyrðis af fiskiskipi á laugardag, heldur áfram í dag. Leitarsvæðið hefur verið stækkað nokkuð en bæði varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar og leitarskip björgunarsveita munu taka þátt í leitinni. 5. desember 2022 10:50
Sjómaðurinn sem leitað er var skipverji á Sighvati GK-57 í eigu Vísis hf. Sjómaðurinn sem leitað hefur verið að frá því á laugardag féll frá borði Sighvats GK-57, línuskips í eigu Vísis hf. Frá þessu er greint í tilkynningu frá útgerðarfélaginu sem Morgunblaðið hefur undir höndum. 5. desember 2022 08:47
Hefja leit að nýju við birtingu Leitinni að skipverja sem féll útbyrðis síðdegis í gær var frestað á tíunda tímanum í kvöld, en leit hefur ekki borið neinn árangur. Varðskipið Þór verður á svæðinu í nótt og mun áhöfn þess hefja leit aftur í birtingu. 4. desember 2022 22:44