Hafa þurft að hlaupa uppi nokkra bólusetningasvindlara Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. janúar 2022 10:36 Ragnheiður segist telja að það sé erfiðara að reyna að svindla sér í gegn núna, þegar bólusetningarnar fara fram í minna rými. Vísir/Vilhelm Enn ber á því að einstaklingar skrái sig í bólusetningu í Laugardalshöll en freisti þess að láta sig hverfa áður en þeir fá sprautuna. Í nokkrum tilfellum hafa lögreglu- og slökkviliðsmenn hlaupið viðkomandi uppi.
Þetta segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, en það gerist reglulega að orðrómur fer á kreik á samfélagsmiðlum og víðar um fólk sem reynir að svindla sér í gegnum bólusetningu, án þess að fá bóluefnið. Tilgangurinn er að sjálfsögðu að fá bólusetninguna skrásetta, sem er meðal annars forsenda þess að fólk geti ferðast erlendis og komist inn á ýmsa fjölfarna staði. Fréttastofa ræddi við Ragnheiði í nóvember en þá hafði verið farið yfir verkferla til að reyna að tryggja að fólk kæmist ekki í gegn án þess að vera sprautað. „Þetta á ekki að geta gerst en ef brotaviljinn er einbeittur þá er það hægt,“ sagði Ragnheiður þá og endurtekur nú. Fylgst er með óvenjulegum ferðum fólks um svæðið þar sem bólusetningarnar fara fram og reynt að tryggja að enginn fari út án þess að hafa þegið bólusetningu. Í nokkrum tilvikum hefur, líkt og fyrr segir, þurft að hlaupa einstaklinga uppi sem hafa stungið af. Ragnheiður segir að fólk sé að sjálfsögðu ekki neytt til að gangast undir bólusetningu en það sé krafið um persónuupplýsingar svo hægt sé að bakfæra skráninguna. Um 50.000 á höfuðborgarsvæðinu eiga örvun eftir „Nú erum við bara að halda áfram á fullu með örvunarskammtana,“ segir Ragnheiður spurð að því hvað standi fyrir dyrum í dag og í næstu viku. „Svo erum við að taka saman hvað er eftir hjá okkur og okkur sýnist að það séu svona 8.000 manns sem hafa bara fengið einn skammt af Janssen. Þetta er hópur sem okkur langar mikið að fá til okkar,“ segir hún. Ragnheiður segir að líklega sé þó ólíklegt að allur hópurinn muni skila sér í bólusetningu, þar sem í honum séu margir sem eru ekki með íslenska kennitölu og mögulega farnir úr landi. Nú séu flestir þeir sem þáðu viðbótarskammt við Janssen í ágúst hins vegar komnir á tíma með að fá örvunarskammt og þeir séu velkomnir í dag og í næstu viku. Heilsugæslunni reiknast til að um 50.000 manns á höfuðborgarsvæðinu eigi enn eftir að fá örvunarskammt. Allir þeir sem telja sig vera komnir á tíma, það er að segja fengu seinni skammtinn fyrir að minnsta kosti fjórum mánuðum, geta mætt í Laugardalshöll og dugir að framvísa kennitölu eða gömlu strikamerki. Bólusetningar barna hefjast á ný í lok mánaðarins.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Fleiri fréttir Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Sjá meira