Búrkína Fasó komið upp fyrir Ísland á FIFA-listanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2021 09:01 Þórir Jóhann Helgason liggur í jörðinni eftir að hafa verið felldur í síðasta leik íslenska landsliðsins á móti Liechtenstein. Vísir/Vilhelm Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fellur niður um tvö sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem var birtur í morgun.
Ísland er nú í 62. sæti listans en íslenska liðið var í átjánda sæti fyrir þremur árum og hefur alls fallið niður um sextán sæti á þessu ári. Íslenska liðið hóf þetta ár í 46. sæti, datt niður í 52. sæti í apríl, niður í 53. sæti í ágúst og hefur síðan fallið niður um níu sæti á síðustu tveimur listum. Ísland var í 53. sæti á listanum fyrir ágúst. Einn sigur í fimm heimaleikjum í haust var ekki að hjálpa íslensku strákunum í baráttunni fyrir sætum á listanum. Næst á dagskrá eru útileiki í nóvember á móti Norður Makedóníu og Rúmeníu en það eru lokaleikir íslenska liðsins í undankeppni HM 2022. Afríkuþjóðirnar Malí og Búrkína Fasó hoppuðu sem dæmi bæði upp fyrir Ísland á nýja listanum. Búrkína Fasó er í harðri baráttu vuið Alsír um að komast áfram upp úr riðlinum og í þriðju umferð í baráttu um afrísku sætin á HM í Katar en Malí er í efsta sæti í sínum riðli. Belgar og Brasilíumenn halda tveimur efstu sætunum en enska landsliðið dettur niður um tvö sæti, fer úr þriðja sæti niður í það fimmta. Frakkar tryggðu sér Þjóðadeildartitilinn á dögunum og komast upp í þriðja sætið og Evrópumeistarar Ítalíu fara líka upp fyrir Englendinga. Hér fyrir neðan má sjá listann sem spænski tölfræðingurinn Alexis Martín-Tamayo var búinn að reikna út í gær. FIFA publicará mañana su nuevo ranking de selecciones, pero no hace falta que esperéis tanto para verlo. pic.twitter.com/vZUodRE4aq— MisterChip (Alexis) (@2010MisterChip) October 20, 2021
HM 2022 í Katar Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Skúrkurinn endaði sem hetjan Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Sjá meira