Veðurstofa Íslands hefur uppfært veðurviðvörun sína á Suðausturlandi í dag upp í appelsínugulan og tekur hún gildi klukkan 16 í dag og til miðnættis annað kvöld.
Í viðvörun Veðurstofunnar er spáð norðan og norðvestanátt með 20-28 m/s, hvassast í Öræfum og undir austanverðum Vatnajökli. Vindhviður um og yfir 45 m/s með mögulegu sand- og grjótfoki.
Fólk er hvatt til að sýna aðgát og tryggja lausamuni. Hættulegt að vera á ferðinni, að því er segir í tilkynningu frá Almannavörnum.
Annars staðar á landinu eru gular viðvaranir í gildi. Fólk er beðið að fylgjast vel með veðurspá á vef Veðurstofu Íslands og færð og ástandi vega á vef Vegagerðarinnar.
Veðurstofa Íslands hefur uppfært veðurviðvörun sína á Suðausturlandi í dag upp í appelsínugulan og tekur hún gildi...
Posted by Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra on Miðvikudagur, 2. desember 2020