Formaður KKÍ segir að mögulegt að FIBA veiti Íslandi undanþágu fyrir næsta heimaleik Runólfur Trausti Þórhallsson og Atli Arason skrifa 29. nóvember 2021 23:00 Hannes S. Jónsson segir ákveðna möguleika í stöðunni varðandi næsta heimaleik Íslands Stöð 2 Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, ræddi við Vísi um stöðu mála í Laugardalshöllinni eftir að íslenska karlalandsliðið tapaði gegn Rússlandi ytra í undankeppni HM 2023.
Ísland á heimaleik gegn Ítalíu snemma á næsta ári en Hannes er ekki bjartsýnn á að Laugardalshöllin verði leikfær á þeim tíma. Þá segir hann að undanþágurnar sem Ísland hefur fengið í gegnum tíðina séu einfaldlega á þrotum. Það eru þó aðrir möguleikar í stöðunni. „Ég er bjartsýnn á að ég geti sýnt og sannað fyrir forystu FIBA að íslenska ríkið sé búið að ákveða að fara í þessa vinnu (að byggja nýjan þjóðarleikvang) og sé tilbúið að fjármagna slíkt verkefni. Þá hugsanlega, mögulega getum við fengið FIBA með okkur í lið og fáum þar með að spila heimaleik í lok febrúar á næsta ári.“ „Ég hef sagt við FIBA í mörg ár að það sé eitthvað í pípunum hér á landi en FIBA þarf að sjá það gerast. Ef það er ljóst að nýr leikvangur er í plönum ríkisstjórnarinnar þá er það okkar verkefni að sanna fyrir FIBA að ríkisstjórnin sé klár og búin að gefa okkur þau loforð sem við þurfum. Ef það gerist þá hugsanlega mun FIBA veita okkur undanþágu til að spila hér á landi.“ „Það er ekkert öruggt en þá eru allavega meiri möguleikar, þetta þarf þó að gerast á næstu dögum. Það þýðir ekki að bíða fram í miðjan desember eða fram á næsta ár.“ KKÍ hefur fengið fjölmargar undanþágur í gegnum tíðina ef marka má orð Hannesar. „Þetta snýr að körfunum á vellinum og þeim búnaði sem er í Laugardalshöllinni, það snýr að klukkunni og öðru sem þarf til að vera á svokölluðu Level 1 hjá FIBA. Það þarf fjölmiðlaaðstöðu sem er þannig að það sé hægt að vera með útsendingu eins og FIBA er með á sínum leikjum. Það þarf ákveðið öryggissvæði, sjúkraherbergi, aðstöðu fyrir áhorfendur og margt fleira sem við höfum fengið undanþágu fyrir í gegnum tíðina.“ „Það má ekki gleyma því að Laugardalshöll er byggð árið 1965. Starfsfólk hallarinnar hefur gert sitt allra besta til að veita okkur möguleikann á þessum undanþágum. Ef við getum sýnt fram á byggingu nýs þjóðarleikvangs myndi FIBA leyfa okkur að vera áfram í Laugardalshöllinni. Bygging slík leikvangs ætti að taka þrjú til fjögur ár myndi ég halda.“ „Ástæðan fyrir því að við fáum það ekki er að Laugardalshöllin er ekki klár (eftir að vatnslagnir sprungu í höllinni). Við hefðum fengið undanþágu fyrir þetta verkefni ef höllin væri klár. Þess vegna er svona mikilvægt að koma henni í gang.“ „Ég er ekki besti maður í heimi til að greina þetta en það virðast hafa verið einhver mistök í útboðsvinnslu sem gerir það að verkum að þetta er búið að taka lengri tíma en áætlað var. Það sem skiptir mestu máli núna er að koma Laugardalshöllinni í stand og að ríkisstjórnin sýni og sanni að við erum að fara fá nýjan þjóðarleikvang,“ sagði Hannes að endingu.
Körfubolti HM 2023 í körfubolta Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Rússland - Ísland 89-65 | Rússneski björninn reyndist Íslandi ofviða Íslenska landsliðið í körfubolta mátti þola stórt tap í Pétursborg í Rússlandi í kvöld er það mætti heimamönnum í undankeppni HM. Lokatölur 89-65 heimamönnum í vil. 29. nóvember 2021 20:30 „Við þurfum okkar áhorfendur“ Ægir Þór Steinarsson, leikmaður Íslands, var svekktur með 24 stiga tap gegn Rússlandi, 89-65. Ægir kennir slakri byrjun á leiknum um tapið en minnir þó á að Rússar eru með gífurlega sterkt lið. 29. nóvember 2021 20:10 Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Í beinni: Stjarnan - Grindavík | Ekkert annað en sigur nægir Stjörnunni Körfubolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti Menn fái sér páskaegg númer tvö en ekki tíu Handbolti Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Enski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Í beinni: Keflavík - Njarðvík | Ekki pláss fyrir bikarþynnku gegn nágrönnunum Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Í beinni: Valur - Breiðablik | Toppliðið fær lánlausa Blika í heimsókn Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Aðeins sá þriðji til að dæma yfir tvö þúsund leiki Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna NFL ætlar að taka jólin frá NBA „Ekki týpan til að gefast upp“ „Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“ Valur vann stórsigur á Stykkishólmi Hætti við að hætta og varð bikarmeistari: „Súrealískt, líkt og í draumi“ KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“ Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu KR-ingar geta endurheimt sæti meðal þeirra bestu í kvöld Arnar hættir að þjálfa bæði lið Stjörnunnar James Harden var bara að reyna að hafa gaman Martin drjúgur í miklivægum sigri Myndasería úr seinni bikarslag dagsins „Það verður partý um allan bæ“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Þór Ak. 89-67 | Keflavík bikarmeistari eftir stórsigur „Héldum bara áfram að berja á þeim“ „Held að ég hafi aldrei spilað fyrir framan svona marga á Íslandi“ Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik Boston heldur flugi og Oklahoma á toppinn Sjónvarpið í svarthvítu og forsætisráðherra ekki fædd Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Rússland - Ísland 89-65 | Rússneski björninn reyndist Íslandi ofviða Íslenska landsliðið í körfubolta mátti þola stórt tap í Pétursborg í Rússlandi í kvöld er það mætti heimamönnum í undankeppni HM. Lokatölur 89-65 heimamönnum í vil. 29. nóvember 2021 20:30
„Við þurfum okkar áhorfendur“ Ægir Þór Steinarsson, leikmaður Íslands, var svekktur með 24 stiga tap gegn Rússlandi, 89-65. Ægir kennir slakri byrjun á leiknum um tapið en minnir þó á að Rússar eru með gífurlega sterkt lið. 29. nóvember 2021 20:10
Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Körfubolti
Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur
Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik
Leik lokið: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði heimamönnum mikilvægan sigur Körfubolti