Miklu harðari aðgerðir í öðrum löndum sem sigruðust á fyrstu bylgjunni Kristín Ólafsdóttir og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 14. október 2020 16:16 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/vilhelm
Nokkur lönd sem náðu svipuðum árangri og Ísland í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins virðast hafa náð að halda honum í skefjum á meðan þriðja bylgjan virðist ætla að verða stærri en sú fyrsta hér á landi. Sóttvarnalæknir bendir á að á Íslandi hafi verið gripið til talsvert vægari aðgerða en annars staðar. Vel þótti takast að kveða fyrstu bylgju faraldursins niður hér á landi, sem og í löndum á borð við Ástralíu, Suður-Kóreu, Nýja-Sjálandi og Japan. Á tímabili í vor var nýgengi smita í öllum löndum nálægt núlli, samkvæmt tölum frá Sóttvarnastofnun Evrópu. Faraldurinn hefur hins vegar aftur sótt í sig veðrið hér á landi. Nýgengi kórónuveirusmita á Íslandi um þessar mundir er rétt tæplega 270. Aldrei hafa fleiri verið í einangrun með virkt kórónuveirusmit í landinu og nú, eða 1.132 samkvæmt upplýsingum á Covid.is. Þegar mest lét í fyrstu bylgju faraldursins voru 1.096 með virkt smit, þann 5. apríl. Skjáskot//Greiningartól Financial Times Hinum löndunum sem áður voru nefnd virðist hins vegar hafa tekist að halda faraldrinum í skefjum nú á haustmánuðum, sem raunar teljast þó vormánuðir á suðurhveli jarðar. Bandaríski læknirinn og rithöfundurinn Eric Tolop vekur athygli á þessu á Twitter-reikningi sínum í gær og birtir þar graf sem fengið er með greiningartóli Financial Times. Grafið sýnir nýgengi smita á hverja milljón íbúa í Ástralíu, Víetnam, Japan, Suður-Kóreu, á Íslandi og Nýja-Sjálandi. „Þessi lönd brutu Covid á bak aftur, hrukku aftur í sama farið en öll nema eitt sigruðust aftur á faraldrinum,“ skrifar Tolop á Twitter-reikningi sínum, og vísar síðasta setningin til Íslands. These countries crushed covid, rebounded, and all but one crushed it again pic.twitter.com/oAKjzPzTPx— Eric Topol (@EricTopol) October 13, 2020 Inntur eftir skýringum á því að Ísland sé nú í verri stöðu en lönd sem náðu svipuðum árangri og við í baráttunni við fyrstu bylgju faraldursins bendir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á að aðgerðir á Íslandi hafi verið vægari en í umræddum löndum. „Þessi lönd, eins og til dæmis Nýja-Sjáland, hafa verið með miklu miklu harðari aðgerðir en við. Bæði á landamærunum, þar er gjörsamlega lokað, þannig að fólk hefur ekki komist inn nema að vera frá Nýja Sjálandi. Og þeir þurfa að fara í fjórtán daga sóttkví. Þeir hafa líka verið með miklu harðari aðgerðir innanlands, þeir hafa verið með „lockdown“ hreinlega, fólk hefur ekki fengið að fara út þegar nokkur tilfelli hafa greinst. Þetta hafa verið miklu, miklu harðari aðgerðir í þessum löndum. Það er jú hægt að gera það ef menn vilja fara í svoleiðis aðgerðir en ég er ekki viss um að það sé vilji fyrir því hér,“ segir Þórólfur. 25 greindust með kórónuveiruna í Ástralíu síðasta sólarhringinn og 271 er með virkt smit í landinu öllu, samkvæmt opinberum tölum frá heilbrigðisráðuneyti landsins. 40 eru með virkt smit á Nýja-Sjálandi en aðeins einn greindist með veiruna síðasta sólarhringinn þar í landi. Þá greindust 84 með veiruna í Suður-Kóreu í gær og 1.421 eru í einangrun í landinu. Allir sem koma til landanna þriggja þurfa að sæta fjórtán daga sóttkví við komuna, með örfáum undantekningum. Faraldur kórónuveiru virðist þó mjög víða sækja í sig veðrið, líkt og hann hefur gert á Íslandi undanfarnar vikur. Mörg Evrópuríki hafa gripið til harðari aðgerða vegna uppgangs veirunnar síðustu daga. Þannig verður stórum hluta samfélagsins lokað í Tékklandi næstu vikurnar en þar í landi er nýgengi smita hið mesta í heiminum.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Nýja-Sjáland Ástralía Suður-Kórea Tengdar fréttir Aldrei fleiri verið í einangrun vegna Covid-19 hér á landi Samkvæmt uppfærðum tölum eru nú 1.132 í einangrun vegna Covid-19. 14. október 2020 11:08 88 greindust innanlands síðastliðinn sólarhring 88 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 45 þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, en 43 ekki. 24 eru nú inniliggjandi á Landspítalanum vegna Covid-19. 14. október 2020 11:04 Þeim fjölgar hratt sem eru í sóttkví á Suðurnesjum Alls eru nú 25 í einangrun á svæðinu, smitaðir af kórónuveirunni og 145 eru í sóttkví, að því er fram kemur stöðuskýrslu almannavarna síðdegis í dag. 13. október 2020 23:46 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Aldrei fleiri verið í einangrun vegna Covid-19 hér á landi Samkvæmt uppfærðum tölum eru nú 1.132 í einangrun vegna Covid-19. 14. október 2020 11:08
88 greindust innanlands síðastliðinn sólarhring 88 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 45 þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, en 43 ekki. 24 eru nú inniliggjandi á Landspítalanum vegna Covid-19. 14. október 2020 11:04
Þeim fjölgar hratt sem eru í sóttkví á Suðurnesjum Alls eru nú 25 í einangrun á svæðinu, smitaðir af kórónuveirunni og 145 eru í sóttkví, að því er fram kemur stöðuskýrslu almannavarna síðdegis í dag. 13. október 2020 23:46