Khloe Kardashian lýsir móti í Candy Crush

Khloé Kardashian.
Khloé Kardashian. AFP

Mótið Candry Crush All Stars hefst í Bandaríkjunum í dag. Er þetta í fyrsta sinn sem rafíþróttamót í leiknum Candy Crush Saga verður haldið í Bandaríkjunum. Khloe Kardashian mun lýsa öllu mótinu.

Úrslitakeppnin í nóvember

Aðeins einstaklingar sem staðsettir eru í Bandaríkjunum fá að taka þátt, en keppnin er aðeins fyrir þá spilara sem hafa náð hærra en stig 25 (e. level 25) í leiknum Candy Crush Saga.

Hefjast undankeppnir mótsins í dag og fer úrslitakeppnin fram í nóvember. Fer keppnin alfarið fram í gegnum netið svo leikmenn geta sitið heima er þeir keppa.

Khloe Kardashian hýsir og lýsir

Khloe Kardashian mun hýsa og lýsa öllu mótinu. „Þeir sem þekkja mig vita að ég er með mesta keppnisskapið í fjölskyldunni, og það er ekkert öðruvísi þegar kemur að Candy Crush,“ er haft eftir Khloe Kardashian. 

Það kemur eflaust einhverjum á óvart að keppt sé í Candy Crush, enda flestir sem spila leikinn til að fá tímann til að líða hraðar. Mótið fyllir hinsvegar öll þau skilyrði sem þarf til að vera rafíþróttamót.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert