Í fyrsta sinn sem United er fjórum undir í hálfleik

Bruno Fernandes og Cristiano Ronaldo svekktir þegar flautað var til …
Bruno Fernandes og Cristiano Ronaldo svekktir þegar flautað var til hálfleiks. AFP

Erkifjendurnir Manchester United og Liverpool etja nú kappi í ensku úrvalsdeildinni. Í hálfleik er Liverpool 4:0 yfir á Old Trafford.

Þessi staða er söguleg fyrir Man United þar sem liðið hefur aldrei í 30 ára sögu úrvalsdeildarinnar verið fjórum mörkum undir í hálfleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert