Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Kristján Már Unnarsson skrifar 20. júlí 2021 23:03 Jónas Egilsson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, í beinni útsendingu í 719 metra hæð ofan af Gunnólfsvíkurfjalli. Finnafjörður og Langanesströnd eru fyrir neðan. Einar Árnason Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum.
Fjallað var um málið í beinni útsendingu af Gunnólfsvíkurfjalli í fréttum Stöðvar 2 þaðan sem horft var yfir Finnafjörð, svæðið sem búið er að skipuleggja sem stórskipahöfn. Þar var rætt við Jónas Egilsson, sveitarstjóra Langanesbyggðar. Teikning af stórskipahöfn í Finnafirði.Grafík/Efla. En hverjar standa á bak við áformin? „Þetta eru tveir aðilar aðallega. Efla annarsvegar með samstarfsaðilum á bak við Finnafjarðarverkefnið. Og svo eru í skoðun möguleikar frá norska fyrirtækinu Zephyr, eða dótturfyrirtæki þess á Íslandi,“ sagði Jónas. Norska félagið Zephyr undirbýr vindorkuver í landi Eiðis. Efla og samstarfsaðilar eru að horfa á Sauðanesháls, Brekknaheiði , Langanesströnd og Digranes sunnan Bakkafjarðar en einnig svæði í Vopnafirði. Frá Brekknaheiði, ofan Þórshafnar. Gunnólfsvíkurfjall í baksýn.Einar Árnason Sveitarstjórinn segir áformin skammt á veg komin. Þau hafi verið kynnt í sveitarstjórn. Jafnframt sé verið að reyna að koma þeim í rannsóknaráætlun til að meta þessa möguleika. En til hvers á að nota orkuna? „Hugmyndin er að framleiða vetni og ammoníak til þess að nota sem orku á skip, aðallega.“ -Erum menn þá að hugsa um að nýta hafnarsvæðið við Finnafjörð, stórskipahöfnina? „Já, það er hluti af hugmyndinni. Og jafnvel að vera með fiskeldi á landi.“ -Þið eruð á sama tíma að tala um þjóðgarð. Fer þetta saman við þjóðgarð á Langanesi? „Við erum að velta upp hugmyndum. Já og nei. Hugmyndir hérna í Finnafirði rekast ekki á þær. En hugmyndir sem eru um vindmyllugarð undir Heiðarfjalli þær myndu ekki ganga með þjóðgarði,“ svarar sveitarstjóri Langanesbyggðar. Hér má sjá frétt Stöðvar 2.
Langanesbyggð Orkumál Umhverfismál Vopnafjörður Þjóðgarðar Vindorka Tengdar fréttir Stendur ekki til að „teppaleggja landið með vindmyllugörðum“ Katrín Jakokbsdóttir forsætisráðherra segir tækifæri liggja í vindorku og að mikilvægt sé að setja skýran ramma um þar um. Ekki standi þó til að „teppaleggja láglendi Íslands með vindmyllugörðum.“ 14. desember 2020 16:05 Áhugasamir kaupendur grænnar orku knýja dyra hjá Landsvirkjun Landsvirkjun finnur fyrir stórauknum áhuga á raforkukaupum, meðal annars frá fjárfestum sem hyggja á græna eldsneytisframleiðslu. Forstjórinn segir þó enga ákvörðun liggja fyrir um smíði nýrra virkjana til að mæta eftirspurninni en lýsir vonbrigðum með leyfisferli vegna vindorku. 23. maí 2021 22:44 Norðausturhornið ráði við að vaxa með Finnafjarðarhöfn Stórskipahöfn í Finnafirði myndi hafa gríðarleg áhrif á norðausturhorni landsins en er jafnframt ávísun á átök, jafnt heima í héraði sem og í landsmálaumræðunni. 12. apríl 2019 23:30 Hafnargerð í Finnafirði gæti orðið stærsta verkefni Íslandssögunnar Stórskipahöfn í Finnafirði gæti orðið stærsta verkefni Íslandssögunnar, að mati sveitarstjóra Langanesbyggðar. Samningar um stofnun þróunarfélags um risahöfnina voru undirritaðir á Þórshöfn í dag. 11. apríl 2019 19:45 Höfn í Finnafirði ýmist sögð lyftistöng eða ógn byggðar Sumir sjá fram á kúvendingu í atvinnumálum og mikla uppbyggingu en aðrir óttast stærðina, landssölu og að fiskimiðin skaðist. 6. september 2018 20:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira
Stendur ekki til að „teppaleggja landið með vindmyllugörðum“ Katrín Jakokbsdóttir forsætisráðherra segir tækifæri liggja í vindorku og að mikilvægt sé að setja skýran ramma um þar um. Ekki standi þó til að „teppaleggja láglendi Íslands með vindmyllugörðum.“ 14. desember 2020 16:05
Áhugasamir kaupendur grænnar orku knýja dyra hjá Landsvirkjun Landsvirkjun finnur fyrir stórauknum áhuga á raforkukaupum, meðal annars frá fjárfestum sem hyggja á græna eldsneytisframleiðslu. Forstjórinn segir þó enga ákvörðun liggja fyrir um smíði nýrra virkjana til að mæta eftirspurninni en lýsir vonbrigðum með leyfisferli vegna vindorku. 23. maí 2021 22:44
Norðausturhornið ráði við að vaxa með Finnafjarðarhöfn Stórskipahöfn í Finnafirði myndi hafa gríðarleg áhrif á norðausturhorni landsins en er jafnframt ávísun á átök, jafnt heima í héraði sem og í landsmálaumræðunni. 12. apríl 2019 23:30
Hafnargerð í Finnafirði gæti orðið stærsta verkefni Íslandssögunnar Stórskipahöfn í Finnafirði gæti orðið stærsta verkefni Íslandssögunnar, að mati sveitarstjóra Langanesbyggðar. Samningar um stofnun þróunarfélags um risahöfnina voru undirritaðir á Þórshöfn í dag. 11. apríl 2019 19:45
Höfn í Finnafirði ýmist sögð lyftistöng eða ógn byggðar Sumir sjá fram á kúvendingu í atvinnumálum og mikla uppbyggingu en aðrir óttast stærðina, landssölu og að fiskimiðin skaðist. 6. september 2018 20:30