Sendiherra Ítalíu í Austur-Kongó hefur verið skotinn til bana. Var sendiherrann um borð í bílalest á vegum matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna í borginni Goma þegar skotið var á hana fyrr í dag.
Ítalska utanríkisráðuneytið hefur staðfest þetta en vitað er til þess að tveir aðrir hafi látist í árásinni, þar á meðal ítalskur lögreglumaður.
Sendiherrann, Luca Attanasio, lést af sárum sínum eftir skothríðina.