Aðstoðar fólk að nálgast ormalyf ólöglega Óttar Kolbeinsson Proppé og Árni Sæberg skrifa 10. janúar 2022 20:41 Margrét Friðriksdóttir er mikill talsmaður lyfsins Ivermektín. Getty Images/Stöð 2 Einn helsti andstæðingur sóttvarnaaðgerða á Íslandi hefur aðstoðað fólk við að nálgast lyfið Ivermektín til meðferðar við Covid-19. Lyfið er lyfseðilskylt og ekki ætlað til meðferðar við Covid-19.
Það vakti athygli í dag þegar Margrét Friðriksdóttir tilkynnti það í pistli sínum að hún hefði undanfarið aðstoðað fólk í kring um sig við að næla sér í lyfið Ivermektín. Lyfið hefur markaðsleyfi og var markaðssett á töfluformi í október á síðasta ári. Einnig er það fáanlegt sem krem sem er einungis ætlað til notkunar útvortis á húð til meðferðar við bólum og þrymlum sem fylgja húðsjúkdómnum rósroða. Ávísun kremsins er bundin við sérfræðinga í húðsjúkdómum. Fréttastofa ræddi lyfið við Margréti og Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar í kvöldfréttum Stöðvar 2: Margrét segir það ekki þannig að hún sjálf sé að selja lyfið innanlands. „Þú getur beðið vissa lækna um þetta og fengið uppáskrift. En eins og ég segi það er svolítið dýrt. En þú getur fengið þetta bara í gegn um apótek. En það er eins og ég segi... þú verður að tala við réttu læknana því það eru margir ennþá eitthvað skeptískir og eru að reyna að loka á þetta,“ segir hún. Lyfjastofnun kærði heimilislækni til lögreglu vegna dreifingar á lyfinu í byrjun síðasta árs. Þá áréttuðu Lyfjastofnun og embætti landlæknis, í ágúst síðastliðnum, að lyfið Soolantra (ivermektín) væri einungis notað til útvortis notkunar á húð, en ekki til inntöku. Stofnanirnar höfðu fengið áreiðanlegar upplýsingar um að sjúklingar með COVID-19 hafi tekið lyfið um munn og rökstuddan grun um að það hafi haft alvarlegar aukaverkanir í för með sér. Gengur kaupum og sölum á svörtum markaði Margrét segir einnig að svartur markaður á lyfinu sé til staðar á landinu. „Já, já. Það eru líka einhverjir sem hafa bara náð að koma með þetta með sér erlendis frá og panta þetta í sumum tilvikum. Það sleppur svona stundum í gegn um tollinn,“ segir hún. Engar rannsóknir sem bendi til að lyfið virki Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, bendir á að Lyfjastofnun Evrópu, Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segi öll að engar niðurstöður rannsókna bendi til þess að Ivermektín gagnist á fyrirbyggjandi hátt við Covid-19. Þá segir hún eitt lyf hafa markaðsleyfi hér á landi sem innihaldi Ivermektín. Það sé notað við ormum og kláðamaur. „Læknum er að sjálfsögðu heimilt að ávísa utan ábendinga, og gera það þá á sína ábyrgð. Fólk verður bara að vita það að lyfið er ekki ætlað til meðhöndlunar á Covid eða fyrirbyggingjandi,“ segir hún. Þá segir hún að einungis megi afhenda umrætt lyf gegn lyfseðli og að fólk megi flytja það inn hafi það lyfseðil sem gildir innan EES-svæðisins. Aðrar leiðir til að útvega lyfið séu ólöglegar.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Lyf Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent