Spá takmörkuðum landvinningum en síðan pattstöðu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. júní 2022 12:42 Úkraínskur hermaður á víglínunni í Severodonetsk. AP/Oleksandr Ratushniak Samkvæmt umfjöllun New York Times telja embættismenn vestanhafs að myndin í Úkraínu sé að skýrast; Rússar muni líklega leggja undir sig meira svæða í austurhluta landsins en mæta harðri andspyrnu sífellt betur vopnaðra Úkraínumanna og ekki ná algjörum yfirráðum yfir Donbas.
Mark A. Milley, yfirmaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segir að ef Úkraínumenn nota vopnin frá Vesturlöndum rétt ætti það að hjálpa þeim mikið á vígvellinum. Þetta segja heimildarmenn NY Times hjá Pentagon þýða að Rússar myndu eiga í erfiðleikum með að sækja fram í Donetsk líkt og þeim hefur tekist í Luhansk. Yfirlýst markmið Rússa er að „frelsa“ bæði héruðin, sem þeir hafa viðurkennt sem sjálfstæð ríki. Bandaríkjamenn gera ráð fyrir að Rússar muni ná Luhansk á sitt vald á næstunni. Vopnasendingar Vesturlanda, sem ættu að fara að skila sér á vígvöllinn, muni hins vegar styrkja stöðu Úkraínuhers í Donetsk. Neither side will likely gain full control of a pivotal region in eastern Ukraine as a depleted Russian military faces an opponent armed with increasingly sophisticated weapons w/@helenecooper, @julianbarnes https://t.co/dniqqgQ4s7— Eric Schmitt (@EricSchmittNYT) June 21, 2022 Frederick B. Hodges, fyrrverandi herforingi Bandaríkjahers í Evrópu, gerir ráð fyrir að stríðið muni vara einhverja mánuði í viðbót en að seint í sumar ættu Úkraínumenn að eygja möguleika á því að ná vopnum sínum og hrekja Rússa eitthvað til baka. „Þetta er prófraun er varðar vilja og vilji Úkraínumanna er meiri,“ segir hann. „Ég sé fyrir mér að staða Úkraínu muni batna með hverri vikunni á sama tíma og það mun fjara undan stöðu Rússa. Þeir eiga enga bandamenn eða vini.“ Michael Kofman, sérfræðingur í málefnum Rússlands, segist telja báða aðila munu verða að þrotum komna eftir um tvo mánuði. Úkraínumenn skorti aðföng og vopn og Rússar séu nú þegar vanbúnir og ekki undir það búnir að eiga í átökum í lengri tíma.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Hernaður Rússland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira